Viðskipti innlent

Viðskipti með bréf Icelandair hafin á ný

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Í tilkynningu frá Icelandair kom fram að ólíklegt sé að búið verði að uppfylla alla fyrirvara á kaupum félagsins á WOW air fyrir hluthafafund á föstudag.
Í tilkynningu frá Icelandair kom fram að ólíklegt sé að búið verði að uppfylla alla fyrirvara á kaupum félagsins á WOW air fyrir hluthafafund á föstudag. vísir/vilhelm
Viðskipti með bréf Icelandair eru hafin á ný en þau voru stöðvuð klukkan 10:21 í morgun að beiðni Fjármálaeftirlitsins.

Í frétt á vef FME kom fram að viðskipti hefðu verið stöðvuð til að vernda jafnræði fjárfesta. Í tilkynningu frá Icelandair kom svo fram að ólíklegt sé að búið verði að uppfylla alla fyrirvara á kaupum félagsins á WOW air fyrir hluthafafund á föstudag.

Eftir að lokað var fyrir viðskipti með bréf Icelandair lækkaði hlutabréfaverð í öðrum skráðum félögum í Kauphöllinni.


Tengdar fréttir

Viðskipti með bréf í Icelandair stöðvuð

Kauphöllin hefur stöðvað öll viðskipti með bréf í flugfélaginu Icelandair. Hvorki er hægt að kaupa né selja bréf í flugfélaginu af þeim sökum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×