Viðskipti innlent

Telur ólíklegt að Icelandair og WOW verði rekin sem tvö félög til frambúðar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Flugfélögin tvö verða áfram rekin undir sömu vörumerkjum að því er fram kom í tilkynningu um kaupin.
Flugfélögin tvö verða áfram rekin undir sömu vörumerkjum að því er fram kom í tilkynningu um kaupin. Vísir/Vilhelm
Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Isavia og reynslubolti í fluggeiranum telur ólíklegt að Icelandair og WOW Air verði rekin sem tvö mismunandi vörumerki til frambúðar í kjölfar samruna félaganna.

Sem kunnugt er var tilkynnt um fyrirhuguð kaup Icelandair Group á Wow Air á mánudaginn í síðustu viku en í tilkynningu um kaupin kom meðal annars fram að gert væri ráð fyrir að félögin yrðu áfram rekin undir sömu vörumerkjum.

Ýmsir hafa talið líklegt að Icelandair muni fylgja straumum og stefnum í flugheiminum með því að reka Wow áfram sem lággjaldaflugfélag sem geri það að verkum að Icelandair geti einblínt á að auka þjónustu og ná þannig til kúnna sem vilji greiða meira fyrir flug.

Heimurinn telur Icelandair vera lággjaldaflugfélag

Jón Karl Ólafsson.Stöð 2/Sindri Reyr Einarsson.
Jón Karl, sem var gestur á Sprengisandi ásamt Kristrúnu Frostadóttur, aðalhagfræðingu Kviku í morgun, er hins vegar efins um þetta.

„Ímynd Icelandair út í þessum stóra heimi er lággjaldaflugfélag,“ segir Jón Karl sem á árum áður var forstjóri Icelandair Group.

„Það eru bara Íslendingar sem halda að þetta sé lúxusfélag,“ skaut Kristrún þá inn um Icelandair.

„Ég held ef ég á að vera alveg hreinskilinn, að það að halda úti tveimur vörumerkjum á markaði sem erfitt er að komast inn á til lengri tíma litið væri ekkert rosalega gáfulegt,“ sagði Jón Karl.

Hann vildi þó ekki spá fyrir um hvenær félögin yrðu látin renna saman í eitt eða hvort sú þróun gæti verið hæg eða hröð. Það væri þó ýmsum vandkvæðum bundið að ætla sér að reka tvö flugfélög.

„Til lengri tíma litið held ég að það verði ekki niðurstaðan að það verði rekin tvö mismunandi vörumerki. Ég held að það verði bara alltof dýrt að koma því á framfæri á þessum mörkuðum þar sem auglýsingapláss og vitneskja kostar bara meiri peninga,“ sagði Jón Karl.



Aðallega í samkeppni við erlend flugfélög

Jón Karl og Kristrún fóru um víðan völl í viðtalinu um stöðu Icelandair og WOW. Voru þau bæði tiltöluleg jákvæð í garð samrunans, ekki síst með tilliti til þess að staða WOW air virðist hafa verið orðin þröng undir það síðasta.

Horfa þyrfti til þess að stór hluti starfsemi félaganna snerist um samkeppni við erlend flugfélög.

„Stóra spurningin snýr kannski að því hvort við viljum vera með eitt sterkt innlent félag sem getur staðið upp í erlendri samkeppni sem fyrst og fremst þetta félag er og þessi bæði félög eru,“ sagði Kristrún. „Eða hvort viljum að þau séu bæði í erlendri samkeppni og innbyrðis samkeppni?“

Hlusta má á viðtalið við þau hér fyrir ofan og neðan en það er í tveimur hlutum.


Tengdar fréttir

Icelandair óskar ekki eftir undanþágu

Stjórnendur félagsins hyggjast ekki óska eftir undanþágu frá samkeppnislögum til þess að kaupin á WOW air komi til framkvæmda strax.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×