Viðskipti innlent

Bogi Nils segir ekki sjálfbært að miðaverð haldist lágt til lengdar

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Bogi Nils Bogason starfandi forstjóri Icelandair Group segir fargjöld Wow Air mjög lág og ráða má af orðum hans að þau muni hækka. Hann segir að margvísleg samlegðaráhrif fylgi kaupum Icelandair á Wow Air gangi þau eftir.

Bogi segir að viðræður hans og Skúla Mogensen forstjóra Wow Air, sem leiddu á endanum til þess að Icelandair keypti Wow Air, hafi borið brátt að. 

„Þær hófust með samtali á föstudagskvöldið. Síðan fór þetta í gang á laugardagsmorgun og kláraðist svo um hádegið í gær,“ segir Bogi. 

Munu neytendur sjá einhverjar breytingar hjá Wow Air ef kaupin ganga eftir?

„Ekki út af þessum kaupum en eins og við höfum séð þá hafa fargjöld verið mjög lág og margir velta fyrir sér hvort það sé sjálfbært til lengri tíma. Félögin verða eftir sem áður í mikilli samkeppni við fullt af stórum flugfélögum sem eru að fljúga hingað til lands og líka þau sem eru að fljúga yfir hafið. Þannig að þó að þessi viðskipti gangi í gegn þá verður samkeppnin mjög mikil áfram og það mun ekkert breytast út af þessum viðskiptum.“

Hann segir að margvísleg samlegðaráhrif fylgi kaupum Icelandair á Wow Air. „Að hafa stærri rekstur felur í sér samlegð. Að geta nýtt starfsfólk, tölvukerfi og fleira. Þegar félög stækka þá verður samlegð.“

Verður Skúli Mogensen áfram forstjóri Wow Air? „Þessi samruni er ekki genginn í gegn. Það eru mjög mörg skilyrði sem þarf að klára áður en að hann gengur í gegn. Það hefur ekkert verið rætt. En ég vona svo sannarlega að Skúli Mogensen verði áfram viðloðandi félagið ef við tökum við því.“

Heimir Örn Herbertsson hæstaréttarlögmaður og sérfræðingur við lagadeild HR.

Fjárhagsstaða Wow Air mun skipta sköpum

Kaupin voru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun, samþykki hluthafafundar Icelandair Group og samþykki Samkeppniseftirlitsins. 

Um er að ræða svokallaðan láréttan samruna því Icelandair er að kaupa keppinaut á sama markaði. Reglan um fyrirtæki á fallandi fæti (e. failing firm defence) er viðurkennd í íslenskum samkeppnisrétti og hefur verið litið til túlkunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á reglunni við mat á samrunum á innri markaðnum. Í reglunni felst að samruni fyrirtækis á fallandi fæti er heimilaður þrátt fyrir að samruninn hafi í för með sér samkeppnishamlandi afleiðingar.

Heimir Örn Herbertsson sérfræðingur í samkeppnisrétti segir að niðurstaða Samkeppniseftirlitsins muni velta á því hvernig markaðir flugfélaganna tveggja eru skilgreindir. 

„Mér finnst mjög líklegt að staða Wow Air, hugsanleg rekstrarvandræði eða erfiðar framtíðarhorfur hjá því félagi, mér finnst mjög líklegt að það skipti verulegu máli varðandi það hvaða viðtökur þessi samruni fær (hjá Samkeppniseftirlitinu),“ segir Heimir Örn.


Tengdar fréttir

Icelandair hækkaði um 39% í dag eftir að tilkynnt var um kaupin á WOW Air

Hlutabréf í Icelandair Group hækkuðu um 39 prósent í Kauphöll Íslands í dag eftir að tilkynnt var kaup félagsins á öllu hlutafé í WOW Air. Kaupverðið er greitt með hlutabréfum í Icelandair. WOW Air verður sjálfstætt dótturfélag Icelandair. Félögin verða rekin áfram undir sömu vörumerkjum og engin breyting verður á rekstri þeirra fyrst um sinn.

Skúli Mogensen: Einhverjir erfiðustu 72 tímar í lífi mínu

Skúli Mogensen, stofnandi WOW Air, segir að síðustu þrír sólarhringar hafi verið einhverjir þeir erfiðustu í lífi hans. Ákvörðunin um að selja flugfélagið til Icelandair hafi verið honum þungbær en um leið segist hann telja að það hafi verið rétt ákvörðun.

Icelandair kaupir WOW air

Stjórn Icelandair Group hefur gert kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í flugfélaginu WOW air. Kaupin eru m.a. gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Icelandair Group, samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.

Með flóknari samrunamálum hér á landi

Samkvæmt reglum samkeppnisréttar getur samruni fyrirtækis á fallanda fæti, til dæmis fyrirtækis á barmi gjaldþrots, verið heimilaður þrátt fyrir að samruninn sé skaðlegur samkeppni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×