Viðskipti innlent

Svar og 1819 innleiða saman nýjar lausnir á markað

Birgir Olgeirsson skrifar
Ágústa Finnbogadóttir og Rúnar Sigurðsson.
Ágústa Finnbogadóttir og Rúnar Sigurðsson.
Svar og 1819 – Nýr valkostur ehf. hafa gert með sér samning um innleiðingu nýrra lausna í upplýsingaveitum fyrir viðskiptavini fyrirtækjanna.

„Þetta er spennandi samstarf á milli fyrirtækjanna tveggja. Svar útvegar og innleiðir hugbúnaðarlausnir og þjónustuver fyrir 1819. Svar og 1819 vinna síðan sameiginlega við innleiða og þróa þjónustuveitu, sem er gagnagrunnur með upplýsingum um innlend fyrirtæki ásamt tengiliðaupplýsingum. Samstarf þetta mun leiða af sér nýtt þjónustuframboð á markaði sem 1819 þróar og viðheldur, og tryggir þjónustuaðgang alla daga sólarhringsins, og Svar selur til sinna viðskiptavina,“ er haft eftir Rúnari Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Svars, í tilkynningu til fjölmiðla um samstarfið.

Ágústa Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri 1819 segir jafnframt í sömu tilkynningu að markmiðið með samstarfinu sé að bæta enn frekar rekstrarumhverfi 1819, með aukinni sjálfvirknivæðingu og lækkun rekstrarkostnaðar með því að nýta lausnir sem Svar býður upp á. „Við erum byrjuð að þróa nýja þjónustuveitu sem er gagnagrunnur með upplýsingum um innlend fyrirtæki ásamt tengiliðaupplýsingum og frekari markhópa greiningu. 1819 á og rekur þjónustuveituna meðan að Svar verður endursöluaðili þjónustuveitunnar, sem einkum verður hluti af innleiðingum á webCRM hjá viðskiptavinum Svars. Fyrirtæki sem eru með CRM kerfi geta fengið áskrift hjá okkur inn í þessa þjónustuveitu til að aðstoða þau í sölu- og markaðssetningu,“ segir hún.

1819 - Nýr valkostur ehf. rekur m.a. upplýsinganúmerið 1819, app og vefsíðuna 1819.is og heldur uppi gagnagrunn með upplýsingum um einstaklinga og fyrirtæki. Einnig tekur 1819 að sér úthringiverkefni og svörun fyrir fyrirtæki.

Svar ehf er rótgróið fyrirtæki á fjarskipta markaði en er nú að hasla sér völl með nýjum lausnum er tengjast bókhaldskerfinu Uniconta. Ein af nýju lausnum Svars er webCRM, sem er nýtt CRM kerfi á Íslandi. Kerfið er íslenskað og tengist við hina nýju þjónustuveitu frá 1819. Uniconta og webCRM eru samþáttuð og auðvelt að sækja markhópa í þjónustuveitu 1819 inn í webCRM, eða þjónustuver/úthringiver frá Svar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×