Erlent

Skoða vígslu giftra presta

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Frans páfi vill skoða að vígja gifta menn.
Frans páfi vill skoða að vígja gifta menn. Getty/Giuseppe Ciccia
Frans páfi hefur boðað suðurameríska biskupa kaþólsku kirkjunnar á kirkjuþing á næsta ári til þess að ræða um þann vanda sem kirkjan stendur frammi fyrir á Amazon-svæðinu. Þessu víðfeðma svæði þjóna fáir prestar. Á þinginu stendur til að ræða mögulegar lausnir við vandanum og verður meðal annars rætt um að heimila giftum mönnum, sem sýnt hafa fram á siðvendni sína, að gerast prestar.

Páfi hefur áður sagt að skortur á kaþólskum prestum á heimsvísu kalli á endurskoðun þeirrar hefðar að prestar skuli ekki vera giftir. Prestum hefur fækkað undanfarin ár vegna þeirra mörgu kynferðis­ofbeldismála sem hafa skekið kirkjuna á heimsvísu.

Til stendur að frumsýna heimildarmynd á Ítalíu í vikunni sem fjallar um á annan tug presta í fjórum Evrópuríkjum sem ýmist eru í leynilegri sambúð með konu, hafa skapað ný kirkjusamfélög sem sniðganga skírlífishefðina eða hafa einfaldlega sagt skilið við kaþólsku kirkjuna vegna hefðarinnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×