Erlent

Robert Durst þarf að svara fyrir ummælin í The Jinx

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Fred Durst var þungamiðjan í þáttunum The Jinx.
Fred Durst var þungamiðjan í þáttunum The Jinx. HBO
Bandaríski auðkýfingurinn Robert Durst, umfjöllunarefni heimildarþáttaraðarinnar The Jinx, þarf að svara til saka vegna andláts vinkonu hans, sem talið er að hafa verið myrt árið 2000. Hann situr nú þegar inni en Durst hlaut sjö ára dóm árið 2016 fyrir brot á lögum um vopnaburð.

Hér á eftir verður drepið á vendingum í The Jinx. Þeim sem hafa áhuga á að sjá þættina er ráðlagt að lesa ekki lengra.

Saksóknarar halda því fram að hinn 75 ára gamli Durst hafi ákveðið að koma Susan Berman fyrir kattarnef svo að hún gæti ekki lengur svarað spurningum lögreglumanna um hvarf eiginkonu hans, Kathleen Durst.

Auðkýfingurinn hefur neitað allri aðkomu að málunum tveimur, sem stangast á við ummæli hans sem heyra mátti í lok fyrrnefndrar þáttaraðar. Durst steig þá úr mynd en virðist hafa gleymt að enn var kveikt á hljóðnema hans. „Hvurn fjárann gerði ég? Ég myrti þau auðvitað öll,“ mátti heyra Durst segja við sjálfan sig í lokaþættinum.

Örfáum klukkustundum áður en þátturinn fór í loftið árið 2015 var Durst handtekinn vegna gruns um að hann hafi ráðið Berman bana.

Ummælin tilefni til réttarhalda 

Auðkýfingurinn var leiddur fyrir dómara í gær en á vef breska ríkisútvarpsins segir að hann hafi síendurtekið truflað dómhald. Þannig hafi hann ítrekað reynt að yfirgefa dómsalinn og óskað viðstöddum góðrar helgar.

Verjendur Durst segja að það sé enginn grundvöllur fyrir málarekstrinum. Hvorki fingraför né nokkuð erfðaefni geti bendlað Durst við dauða Berman. Dómarinn í málinu sagði þó að með ummælum sínum í The Jinx hafi auðkýfingurinn gengist við fjölda morða - nema að hann geti fært sannfærandi rök fyrir máli sínu.


Tengdar fréttir

Sakamálið varð að þáttaröð og svo aftur að sakamáli

Auðkýfingurinn Robert Durst, sem sakaður er um að hafa myrt að minnsta kosti tvær konur og einn karl sem honum tengdust, er nú kominn aftur í fangelsi. Hann var til ummfjöllunar í vinsælli þáttaröð á HBO.

Robert Durst í sjö ára fangelsi

Auðkýfingurinn var handtekinn degi eftir að síðasti þátturinn af The Jinx: The Life and Deaths of Robert Durst fór í loftið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×