Lífið

Kærasti Söru Heimis fékk tvö hjartaáföll: „Sterar komu hvergi nálægt“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sara Heimis og Chris Miller á sjúkrahúsinu.
Sara Heimis og Chris Miller á sjúkrahúsinu. myndir/instagram
„Sit hérna með ástinni minn Chris Miller á spítalanum eftir að hann fékk tvö hjartaáföll á stuttum tíma,“ segir fitness stjarnan íslenska Sara Heimisdóttir í færslu á Instagram, en kærasti hennar Chris Miller fór strax í aðgerð og segir Sara að honum líði betur í dag.

„Ég var aðeins nokkrum mínútum frá því að missa hann. Hjartalokur hans voru nánast stíflaðar. Ég er svo stolt af mínum manni. Ég vil fá að taka það fram að sterar komu hvergi nálægt þessum atburði, en hann hefur verið í áraraðir í vaxtarækt og það hjálpaði vissulega ekki. Læknar segja að um hjartagalla sé að ræða.“

Sara Heimisdóttir var áður gift Rich Piana sem lést í ágúst á síðasta ári. Þegar sjúkraflutningamenn komu að Piana á heimili sínu í Flórída fannst töluvert magn af sterum þar.


Tengdar fréttir

Rich Piana með húðkrabbamein

Vaxtaræktarkappinn Rich Piana, fyrrverandi tengdasonur Íslands, er með húðkrabbamein en þetta kemur fram í nýjasta myndbandi kappans á YouTube.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×