Viðskipti innlent

Vilhjálmur selur hlut sinn í ALP

Sylvía Hall skrifar
Vilhjálmur Sigurðsson.
Vilhjálmur Sigurðsson. Aðsend
Vilhjálmur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sölu og Markaðssviðs ALP hf. sem rekur Avis, Budget, Payless og ZipCar, hefur hætt störfum eftir að hafa selt hlut sinn í fyrirtækinu.

Samhliða þessu hefur hann ásamt eiginkonu sinni aukið við eignarhlut sinn í Hótel Láxa í Mývatnssveit og Hótel Kríu í Vík í Mýrdal. Þau hyggjast nú einbeita sér að hótelrekstri og öðrum fasteignarverkefnum.

Vilhjálmur hefur verið einn af eigendum ALP hf síðan 2010, en þá keypti hann fyrirtækið í annað sinn eftir að hafa selt það árið 2007. 

Í tilkynningu frá Vilhjálmi segir að Vilhjálmur hafi 29 ára reynslu af rekstri bílaleiga en hann skrifaði undir fyrsta sérleyfissamning Budget á Íslandi árið 1991. 

„ALP rekur  eina stærstu bílaleigu landsins með tæplega fjögur þúsund bifreiðar.  Fyrirtækið hefur náð frábærum árangri í sölu og markaðsmálum og m.a. hlotið verðlaunin „Licensee of the Year” hjá Avis Budget Group oftar en nokkuð annað land í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku,“ segir jafnframt í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×