Viðskipti innlent

Orkuskiptin stórt ímyndarmál fyrir Íslendinga

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Dr. Friðrik Larsen
Dr. Friðrik Larsen
„Orkuskiptin eru hafin en almenningur þarf að verða meðvitaðri um að þetta sé mögulegt og mikilvægt skref í tækni og framförum. Þetta er einnig stórt ímyndarmál fyrir okkur Íslendinga. Við eigum ekki að láta fyrsta sætið af hendi sem sjálfbærasta þjóð í heimi en til þess að vera í forystu í þessum málum þá verðum við að láta verkin tala,“ segir Dr. Friðrik Larsen, lektor í markaðsfræðum og einn aðstandenda orkumálaráðstefnunnar Charge Branding Energy, sem fram fer í Hörpu eftir helgi.

Á ráðstefnunni verður ljósi varpað á framtíð orkumála í heiminum, til að mynda verða endurnýjanlegir orkugjafar og rafmagnaðar samgöngur þar til umfjöllunar. Að sögn aðstandenda er búist við um 300 gestum á ráðstefnuna en á meðal fyrirlesara eru stjórnendur úr nokkrum af stærstu fyrirtækum í heimi á þessu sviði. Þá er von á stofnendum og stjórnendum virtra alþjóðlegra ráðgjafastofa.

„Meðal gesta ráðstefnunnar er Indverjinn Sushil Reddy, stofnandi Sun Pedal Ride. Í fyrirlestri sínum á ráðstefnunni kemur hann inn á ferðalög sín, þar á meðal nýjasta ævintýrið; hringferð um Ísland á IKEA rafhjóli. Eins og áhorfendur á ráðstefnunni munu sjá verður framtíð orkumála mótuð af bestu og framsýnustu vörumerkjunum, óháð geira. Það er því ánægjulegt að hafa fengið framsækin vörumerki til liðs við CHARGE til að vekja athygli á möguleikum rafknúinna og umhverfisvænna samgöngumáta,“ segir Dr. Friðrik ennfremur.

Ráðstefnan fer sem fyrr segir fram í Hörpu dagana 24. og 25. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×