Viðskipti innlent

Skila tvöfalt meiri arðsemi

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Erfiðara er fyrir konur að fá fjárfesta til liðs við sig.
Erfiðara er fyrir konur að fá fjárfesta til liðs við sig. Vísir/Getty
Nýsköpunarfyrirtæki sem konur hafa stofnað skila fjárfestum meiri arðsemi en nýsköpunarfyrirtæki sem karlar stofna, eða yfir tvöfalt meiri arðsemi á hvern dollara sem er fjárfestur. Konur eiga hins vegar miklu erfiðara með að fá fjárfesta til liðs við sig.

Konurnar þurfa oftar að sanna getu sína en karlar auk þess sem karlkyns fjárfesta skortir oft þekkingu á vörum og þjónustu sem konur setja á markað fyrir kynsystur sínar.

Þetta kemur fram í skýrslu ráðgjafarfyrirtækjanna Boston Con­­sulting Group og MassChall­enge sem hafa rannsakað mun á fyrirtækjum kvenna og karla.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×