Innlent

Mathöllin við Hlemm þrefalt dýrari en fyrst var reiknað með

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Frá Mathöllinni við Hlemm.
Frá Mathöllinni við Hlemm. Fréttablaðið/Eyþór
Heildarkostnaður við Mathöllina við Hlemm er um þrefalt meiri en upphaflega var gert ráð fyrir. Frumkostnaðaráætlun hljóðaði upp á 107 milljónir króna en heildarkostnaður við að koma upp Mathöllinni hljóðar nú upp á 308 milljónir króna.

Þetta kemur fram í svari skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem lagt var fyrir borgarráð í dag. Spurt var um hver hafi verið upphaflegur áætlaður kostnaður vegna Mathallarinnar við Hlemm og hver heildarkostnaðurinn varð eftir endurbætur og breytingar.

Dyr Mathallarinnar voru opnaðar í ágúst á síðasta ári eftir að miklar endurbætur höfðu verið gerðar á strætóbiðstöðinni fornfrægu. Þar má gera vel við sig í mat og drykk og hefur Mathöllinn reynst mjög vinsæl strax frá fyrsta degi.

Margir muna kannski eftir Hlemmi svona, áður en ráðist var í breytingarnar.Fréttablaðið/Ernir

Húsið „tæplega“ fokhelt áður en ráðist var í endurbætur

Frumkostnaðarmat vegna breytinganna var gert í febrúar 2016. Þar var gert ráð fyrir rétt tæpum 100 milljónum í kostnað við að endurhanna Hlemm til þess að rúma þar mathöll. Ofan á það var reiknað með rúmum sjö milljónum í uppsafnað viðhald á húsnæðinu.

Í svari við fyrirspurn Sjálfstæðisflokksins kemur hins vegar fram að uppsafnað viðhald á Hlemmi hafi reynst mun umfangsmeira en áætlað var. Segir þar að eftir að eldri innréttingar hafi verið fjarlægðar hafi húsið verið í „tæplega fokheldisástandi.“

Í sundurliðuðu kostnaðaryfirliti sem fylgir svarinu, og sjá má á mynd neðst í fréttinni, kemur fram að stærsti einstaki kostnaðarliðurinn við framkvæmdirnar voru framkvæmdir við nýja milliveggi og loft eða 49 milljónir. Þá voru hita- og hreinlætislagnir endurnýjaðar fyrir 40 milljónir og viðhald og endurnýjun á þakklæðningu og gleri kostaði 33 milljónir. Þá kostaði átta milljónir að rífa og hreinsa út úr húsinu áður en framkvæmdir hófust.

Kostnaður vegna þessara umfangsmiklu breytinga er í dag bókaður 236 milljónir króna en í desember 2016 var borgarráð upplýst um að umfang verksins yrði mun meira en frumkostnaðaráætlunin gaf til kynna.

Við milljónirnar 236 bættist svo ýmis kostnaður, þar á meðal lóðaframkvæmdir upp á ellefu milljónir, verk að ósk leigutaka upp á 22 milljónir, sem hækkar leiguverð til samsvörunar. Í svarinu kemur einnig fram að til viðbótar hafi komið ýmis ófyrirséður kostnaður, líkt og ákvörðun borgarráðs um að halda húsinu opnu fram til miðnættis á þróunar- og undirbúningstímabili Mathallarinnar. Það hafi falið í sér að ráða öryggisfyrirtæki til þess að sjá um gæslu umfram þann tíma sem lagt var upp með. Heildarkostnaður tekinn saman 4. júní, hafi samtals verið 308 milljónir króna.

Í svarinu kemur einnig fram að húsnæðið sjálft sé orðið 40 ára og að ljóst sé að „ stór hluti af þessum kostnaði hefði borgin þurft að takast á hvort sem ákveðið hefði verið að leggjast í framkvæmdir sem miðuðu að umbreytingu til þess að endurskapa húsið sem mathöll Reykvíkinga.“

Mathöllin er vinsæl, þrátt fyrir að hafa verið mun dýrari en reiknað var með í fyrstu.Fréttablaðið/Eyþór

Segir þrekvirki hafa verið unnið

Í svarinu segir að verkefnið að umbreyta strætóstöð í nútíma mathöll hafi verið óvenju flókið. Þrekvirki hafi hins vegar verið unnið við endurreisn Hlemms með framkvæmdunum við Mathöllina.

„Það er ljóst að þrekvirki hefur unnist í endurreisn Hlemms og á undurskömmum tíma hefur svæði sem þótti eiga undir högg að sækja fengið sess sem eitt mest spennandi og áhugaverðasta svæði í Reykjavík,“ segir í svarinu.

Þá segir einnig að velgengni verkisins hafi haft jákvæð áhrif langt út fyrir sjálfa Mathöllinar þar sem tóm rými ofarlega á Laugavegi hafi byrjað að fyllast af lífi fljótlega eftir að tilkynnt var um áætlanirnar um koma Mathöll fyrir á Hlemmi.

„Áður vartalið að Laugavegurinn væri mögulega of löng verslunargata en með Mathöll hefur tekist að skapa nýjan segul á austurenda miðborgarinnar sem skapar betra jafnvægi í umferð gesta og gangandi um hana,“ segir í svarinu.

Kostnaðargreining vegna Mathallarinnar við Hlemm frá 4. júní.

Tengdar fréttir

Mathöllin fær að leigja Hlemm á kostakjörum

Samkvæmt leigusamningi greiðir Mathöllin á Hlemmi Reykjavíkurborg rétt rúma milljón á mánuði í leigu fyrir gömlu strætóstoppistöðina. Fermetraverðið er því töluvert undir því sem gengur og gerist fyrir verslunarhúsnæði í miðborginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×