Viðskipti innlent

Bjóða allt hlutafé Íslenska gámafélagsins til sölu

Hörður Ægisson skrifar
Velta Íslenska gámafélagsins hefur nærri tvöfaldast frá 2012.
Velta Íslenska gámafélagsins hefur nærri tvöfaldast frá 2012.
Hluthafar Íslenska gámafélagsins, eignarhaldsfélagið Gufunes og fagfjárfestasjóðurinn Auður I hafa ákveðið að bjóða til sölu allt hlutafé félagsins. Það er fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka sem hefur umsjón með söluferlinu en í stuttri fjárfestakynningu, sem Markaðurinn hefur undir höndum, kemur fram að áætlað sé að velta fyrirtækisins á þessu ári verði um 4,9 milljarðar króna og hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) um 650 milljónir.

Formlegt söluferli hófst í byrjun þessa mánaðar en gert er ráð fyrir að fyrstu óskuldbindandi tilboðin berist frá fjárfestum á fyrri helmingi júlímánaðar.

Aðalstarfsemi Íslenska gámafélagsins er almenn sorphirða og útleiga á gámum, bifreiðum og tækjum. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru 4.500 talsins og samanstanda af 2.800 fyrirtækjum og stofnunum, 1.700 einstaklingum og 23 sveitarfélögum. Allt hlutafé Vélamiðstöðvarinnar, dótturfélags Íslenska gámafélagsins, er jafnframt til sölu en samtals starfa um 300 manns hjá fyrirtækjunum.

Íslenska gámafélagið er í jafnri eigu Gufuness ehf. og Auðar I en stærsti hluthafi Gufuness er Jón Þórir Frantzon, sem er jafnframt stjórnarformaður Íslenska gámafélagsins.

Í fjárfestakynningunni kemur fram að frá árinu 2012 hafi velta félagsins nærri tvöfaldast og nemur árlegur vöxtur að meðaltali um 10,7 prósentum. Þá hefur EBITDA félagsins þrefaldast yfir sama tímabil og er gert ráð fyrir að EBITDA sem hlutfall af tekjum verði um 13 prósent á þessu ári.

Efnahagsreikningur Íslenska gámafélagsins hefur stækkað mjög á síðustu árum samhliða auknum umsvifum og endurnýjun á bifreiðum og flutningatækjum. Heildareignir í árslok 2017 námu 5,5 milljörðum. Nettó skuldir félagsins voru um 2,8 milljarðar og eigið fé nam 1,7 milljörðum. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×