Fótbolti

Fíflagangur í fótboltaleik með fílum leyndarmálið á bak við léttleika Króata

Tómas Þór Þórðarson í Rostov við Don skrifar
Leyndarmálið er nýr króatískur tölvuleikur. Ekki segja neinum.
Leyndarmálið er nýr króatískur tölvuleikur. Ekki segja neinum. vísri/getty
Leikmenn króatíska landsliðsins í fótbolta virðast ekki fá nóg af því að spila fótbolta innan vallar heldur stunda þeir hann nú grimmt utan vallar. En, í símanum.

Króatíska liðið er orðið háð nýjum símatölvuleik sem heitir Football Legends: El Magico. Króatarnir spila hann stanslaust á hótelinu, samkvæmt frétt króatíska miðilsins tportal.hr, og keppast við að vera ofar en næsti maður á skortöflunni.

Króatískir fjölmiðlamenn hafa haft það á orði hversu létt er yfir liðinu og þegar að þeir fóru í gegnum Instagram-reikninga allra leikmanna sáu þeir hvern leikmanninn á fætur öðrum vera að tala um leikinn og setja inn myndir af afrekum sínum í honum.

Luka Modric og Vedran Corluka eru báðir mjög góðir í El Magico.mynd/instagram

Modric bestur

Þeir virðast líka vera að hjálpa samlöndum sínum að koma leiknum á framfæri en fyrirtækið sem býr hann til er króatískt og staðsett í Split. Leiknum hefur aðeins verið niðurhalað eitt þúsund sinnum en það gæti aukist eftir þessa auglýsingu króatísku landsliðsmannanna.

Luka Modric er allra manna bestu í króatíska liðinu í El Magico en hann er á topp 20 í heiminum. Vedran Corluka er í 33. sæti og Ivan Rakitci í 44. sæti. Auk landsliðsmannanna eru aðrar króatískar fótboltastjörnur að spila leikinn eins og Slaven Bilic, Darko Stanic, Dario Simic og Stipe Pletikosa.

El Magico þykir mjög ávanabindandi en þar er hægt að velja um 32 lið til að spila með og er hver leikur 90 sekúndur. Það þykir ansi erfitt að komast áfram í honum en alltaf reyna menn aftur. Allavega króatísku landsliðsmennirnir.

Lítur vel út.mynd/el magico

Fílabeins-fílar

Ekki er spilað með fótboltaköllum heldur hefur hvert land sitt einkenni. Rússar eru babúskur, Bandaríkjamenn NFL-kallar og fótboltamenn Fílabeinsstrandarinnar eru einfaldlega fílar. Hress og skemmtilegur fíflagangur sem heldur allavega Króötum gangandi á bak við tjöldin.

Króatarnir virðast svo jafn góðir innan vallar sem utan því þeir eru sama og búnir að vinna D-riðilinn á HM 2018. Ísland mætir Króatíu á morgun og þarf á sigri að halda til að komast áfram en Króatar munu gera nokkrar breytingar á sínu liði.

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á Facebook, Twitter og Instagram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×