Innlent

Kyrrsettur við Skógafoss með 41 farþega án rekstrarleyfis til aksturs

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Lögreglan kyrrsetti hópfreðabíl við Skógafoss án réttinda. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Lögreglan kyrrsetti hópfreðabíl við Skógafoss án réttinda. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Eyþór
Lögreglan á Suðurlandi hafði í nógu að snúast í liðinni viku en helstu verkefni tengdust akstri ökumanna. Í liðinni viku voru þrír ökumenn kærðir fyrir að aka undir áhrifum áfengis í umdæminu. Tveir þeirra voru við akstur á Selfossi, annar þeirra er jafnframt grunaður um að hafa jafnframt verið undir áhrifum fíkniefna og svarað jákvætt við prófun á kókaíni samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.  Þriðji aðilinn var stöðvaður af lögreglu á Þjórsárdalsvegi með því að lögreglubifreið var ekið á bifreið hans, eins og fjallað hefur verið um hér á Vísi.

Hópferðabifreið fyrir 41 farþega var kyrrsett við Skógarfoss miðvikudaginn 9. maí þegar í ljós kom að viðkomandi hafði ekki rekstrarleyfi til aksturs. Maður á þrítugsaldri var handtekinn á Selfossi sama dag vegna gruns um fíkniefnamisferli. Hann framvísaði 11 neysluskömmtum af efninu og sagði það til eigin nota. Fór frjáls ferða sinna að skýrslutöku lokinni.

24 ökumenn voru svo kærðir fyrir að aka of hratt. Einn þeirra reyndist réttindalaus eftir að hafa verið sviptur ökurétti við afgreiðslu annars umferðarlagabrots. Sá var að aka um þjóðveg 1 við Steina undir Eyjafjöllum á 101 km/klst hraða þar sem leyfður hraði er 70 km/klst. 11 þessara ökumanna voru á 120 km/klst hraða eða meira og sá sem hraðast ók var mældur á 145 km/klst hraða.

Lögreglumenn höfðu i gær afskipti af flutningi gröfu á kerru aftan í jeppa en kerra sú ásamt gröfunni vigtaði 520 kílóum meira en það sem bifreiðin mátti draga. Þá var grafan einnig óbundin á vagninn.   Viðkomandi var bönnuð frekari för þar til komið væri með ökutæki sem mætti draga þessa þyngd.

Skráningarnúmer voru tekin af sex bifreiðum sem reyndust ótryggðar í umferðinni. Sekt við akstri ótryggðar ökutækja í umferðinni er nú 50 þúsund krónur.


Tengdar fréttir

Berserkurinn í Biskupstungum í framboði

Maðurinn sem gekk berserksgang á gröfu við heimili sitt í Biskupstungum í gær heitir Ingvar Örn Karlsson og er hann annar maður á lista Nýs afls í Bláskógabyggð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×