Viðskipti innlent

Útboð í Heimavöllum hefst í dag

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Leigufélagið Heimavellir var með tæplega 2.000 leiguíbúðir í rekstri í lok síðasta árs.
Leigufélagið Heimavellir var með tæplega 2.000 leiguíbúðir í rekstri í lok síðasta árs. Vísir/Stefán
Útboð á hlutum í húsaleigufyrirtækinu Heimavöllum hefst klukkan 10 í dag og lýkur klukkan 16 á morgun. Í útboðinu verða boðnir til sölu 750.000.000 nýir hlutir í Heimavöllum, að því er fram kemur í frétt á vef Landsbankans.

Markmiðið með útboðinu er að fjölga hluthöfum í Heimavöllum þannig að félagið uppfylli skilyrði Aðalmarkaðar Kauphallar Íslands varðandi dreifingu hlutafjár og fjölda hluthafa.

Fjárfestar geta valið um þrjár tilboðsbækur í útboðinu sem eru m.a. ólíkar hvað varðar stærð áskrifta, verðlagningu og úthlutunarreglur. Upplýsingar um tilboðsbækur má nálgast á vef Landsbankans.

Sjá einnig: Tæplega þriggja milljarða hagnaður af rekstri Heimavalla

Söluandvirði útboðsins, miðað við að allir hlutir í útboðinu verði seldir á lágmarksverði hverrar tilboðsbókar, er á bilinu 1.024.650.000 - 1.229.580.000 krónur eftir því hvort heimild til að fjölga seldum hlutum verður nýtt eða ekki.

Útboðið er markaðssett á Íslandi og er þátttaka í því heimil öllum þeim einstaklingum og lögaðilum sem hafa bæði íslenska kennitölu og eru fjárráða.

Heimavellir er stærsta leigufélag landsins og var með tæplega 2.000 leiguíbúðir í rekstri í lok síðasta árs. Heimavellir eru enn fremur fyrsta félagið sem skráð er á Aðallista Kauphallar eftir fjármálahrun sem hyggst afla fjármagns með skráningu á hlutabréfamarkað.


Tengdar fréttir

Gætu fengið um 400 milljóna króna hlut

Hluthafar Heimavalla GP eiga rétt á árangurstengdri greiðslu í formi hlutar í leigufélaginu. Gætu fengið tveggja prósenta hlut ef útboðsgengið verður um 1,7 krónur á hlut. Hafa áður fengið um 480 milljónir fyrir ráðgjafastörf 2015 - 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×