Markalaust jafntefli skilaði Bayern í undanúrslit

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bayern fagnar.
Bayern fagnar. vísir/getty
Markalaust jafntefli í kvöld gegn Sevilla tryggði Bayern Munchen sæti í undanúrslitum Meistaradeild Evrópu.

Bayern vann fyrri leikinn 2-1 með herkjum en Sevilla komst yfir í leiknum á Spáni. Þjóðverjarnir snéru þó leiknum sér í hag og skoruðu tvö útivallarmörk.

Leikurinn í kvöld var í járnum og endaði, eins og áður segir, með markalausu jafntefli. Samanlagt því 2-1 sigur Bayern.

Bayern verður í undanúrslitunum ásamt Liverpool, Roma og Real Madrid.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira