Erlent

Lífslíkur inúíta í Kanada minni

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Lífshættir skýra að hluta minni lífslíkur inúíta. Myndin er frá Grænlandi.
Lífshættir skýra að hluta minni lífslíkur inúíta. Myndin er frá Grænlandi. Vísir/AFP
Inúítar í héraðinu Nún­avút í Kanada lifa 10 árum skemur en aðrir Kanadabúar. Frá þessu er greint á vef grænlenska útvarpsins sem vitnar í kanadíska vefmiðilinn Uphere. Meðalævilengd inúíta í Núnavút er aðeins 71 ár.

Bent er á að hluti skýringarinnar sé eðlilegur munur á lífsháttum. Voðaskot og drukknun eru algengari dánarorsakir meðal inúíta en annarra Kanadamanna.

Tæplega fjórðungur Núnavútbúa hefur reglulegt aðgengi að lækni. Í mörgum byggðum eru íbúarnir heppnir komi tannlæknir til þeirra einu sinni á ári.

Meðalævilengd karla á Grænlandi árið 2015 var 69 ár en kvenna 74 ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×