Lést eftir að hafa fest höfuðið í bíósæti Stefán Ó. Jónsson skrifar 21. mars 2018 06:33 Slysið varð í Vue-kvikmyndahúsi í Birmingham í upphafi mánaðarins. Google Street View
Breskur maður lést eftir að hafa klemmt höfuðið undir fótaskemli í kvikmyndahúsi í borginni Birmingham þann 9. mars síðastliðinn. Rannsóknin málsins stendur enn yfir en því er lýst sem hinu undarlegasta. Vitni lýsa því í samtali við breska miðla hvernig maðurinn missti símann sinn undir sætið og ákvað því að beygja sig eftir honum. Maðurinn hafði sótt sýningu í kvikmyndasal svipuðum þeim sem kallaðir eru „lúxussalir“ í íslenskum kvikmyndahúsum. Í slíkum sölum eru sætin oftar en ekki með rafmagnsdrifinn fótaskemil eins og raunin var í Vue-kvikmyndahúsinu í Birmingham. Þegar maðurinn reyndi að standa upp eftir að hafa nálgast símann sinn er hann sagður hafa fest höfuðið undir fótaskemlinum. Sessunautar mannsins gerðu hvað þeir gátu til að losa manninn en ekkert gekk fyrr en skemillinn var að lokum brotinn. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést viku síðar. Banamein hans er sagt vera hjartaáfall sem rakið er beint til átakanna og áfallsins sem hlaust af slysinu í kvikmyndasalnum. Forsvarsmenn kvikmyndahússins hafa sent aðstandendum mannsins samúðarkveðjur og segja að málið verið rannsakað ofan í kjölinn.
Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Fleiri fréttir Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Sjá meira