Erlent

Fyrirfór sér við Hvíta húsið

Birgir Olgeirsson skrifar
Hvíta húsið í Washington-borg í Bandaríkjunum.
Hvíta húsið í Washington-borg í Bandaríkjunum. Vísir/Getty
Karlmaður fyrirfór sér fyrir framan Hvíta húsið í Bandaríkjunum fyrr í dag. Greint er frá þessu á vef CNN en þar segir að maðurinn hafi skotið sig í höfuðið.

Skothvellurinn varð til þess að viðbragðsáætlun var virkjuð. Talsmaður bandarísku leyniþjónustunnar segir þetta hafa verið einangrað tilvik og engan annan hafi sakað.

Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump var staddur í Flórída ásamt eiginkonu sinni Melaniu þegar þetta átti sér stað en er væntanlegur aftur til Washington í kvöld til að vera viðstaddur árlegan kvöldverð Gridiron-klúbbsins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×