Erlent

Hin­rik prins kvaddur með lát­lausri at­höfn

Heimir Már Pétursson skrifar

Útför Hinriks prins eiginmanns Margrétar Þórhildar Danadrottningar fór fram frá Hallarkirkjunni við Cristiansborgarhöll í morgun að viðstöddum nánustu ættingjum, vinum og samstarfsfólki. Að ósk Hinriks var útförin látlaus.



Útförin hófst klukkan ellefu að að dönskum tíma eða klukkan tíu að íslenskum tíma með því að klukkum í öllum kirkjum í Danmörku var hringt. Sextíu manns voru gestir við útförina að konungsfjölskyldunni meðtalinni, Margréti Þórhildi drottningu, Friðriki krónprins og Maríu krónprinsessu, Jóakim Prins og eiginkonu hans Maríu prinsessu ásamt börnum þeirra.

Vísir/EPA

Alexandra fyrrverandi eiginkona Jóakims var einnig við útförina. Þá voru systur drottningar og Kostatín konungur Grikklands við athöfnina ásamt níu manns út fjölskyldu Hinriks í Frakklandi, þeirra á meðal systur hans og bræður.



Fyrir hönd stjórnvalda voru Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra og Pia Kjærsgaardt forseti þingsins ásamt Thomas Rørdam forseta Hæstaréttar. Sendiherra Frakklands í Danmörku François Zimeray var einnig við útförina. Þá vakti athygli að þjónustufólk Hinriks var meðal gesta, meðal annarra Anker Andersen sem var herbergisþjónn Hinriks í fjörutíu ár og var honum mikil stoð og stytta þegar hann kom fyrst til Danmerkur.

Vísir/EPA

Erik Norman Svendsen sérlegur prestur konungsfjölskyldunnar þjónaði fyrir altari í útförinni og fór með minningarorð um prinsinn. Hann hafi alla tíð þjónað Margréti drottningu í embætti en heima í höllinni hafi hann verið húsbóndinn sem stjórnaði uppeldi sonanna og húshaldinu og haldið í franskar hefðir og hengt hatt sinn þar sem honum hentaði. Hann hafi verið listamaður, spilað á píanó, samið ljóð og gert höggmyndir og gefið út matreiðslubækur



„Hinrik naut þess að deila list sinni með drottningunni og síðar með almenningi. En þau þýddu síðan saman skáldsögu Simone De Beauvoir, Allir menn eru dauðlegir,“ sagði Sr. Svendsen.

Vísir/EPA

Drengjakór Kaupmannahafnar söng m.a. við athöfnina en prinsinn var verndari kórsins í 45 ár. Liðsmenn í lífvarðarsveit drottningar báru kistu Hinriks úr kirkju en lík hans verður brennt. Helmingi öskunnar verður dreift í hafið við strendur Danmerkur en hinn helmingurinn jarðsettur í einkagrafreit konungsfjölskyldunnar við Fredensborgarhöll.



Fulltrúar út öllum deildum danska hersins stóðu heiðursvörð fyrir utan kirkjuna en prinsinn var bæði generáll og aðmíráll í danska hernum. Danska ríkissjónvarpið var með beina útsendingu frá útförinni nema frá síðustu mínútum hennar þar sem fjölskyldan fékk að kveðja prinsinn í friði fyrir myndavélum.


Tengdar fréttir

Guðni forseti og Vigdís minnast Hinriks með hlýju

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir að hugur hans og Elízu sé hjá Margréti Þórhildi drottningu og fjölskyldu hennar nú þegar Hinrik prins sé fallinn frá. Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti þekkti prinsinn ágætlega og segir þau ávallt hafa náð vel saman.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×