Ákærðir fyrir meiriháttar skattsvik á Austur og Laundromat Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 21. febrúar 2018 11:15 Hallur og Valgarð komu að rekstri Austur og Laundromat Café.
Héraðssaksóknari hefur ákært Hall Dan Johanssen og Valgarð Þórarinn Sörensen fyrir meiriháttar skattalagabrot og brot á almennum hegningarlögum. Hallur Dan var stjórnarformaður og prókúruhafi einkahlutafélagsins Austurstræti 7, sem nú er þrotabú, sem stofnað var í kringum rekstur skemmtistaðarins Austur. Valgarð var meðstjórnandi og prókúruhafi félagsins. Eru þeir ákærðir fyrir að hafa ekki staðið í skilum á virðisaukaskattskýrslum félagsins haustið 2009 og fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri félagsins. Samtals voru 6.982.058 krónur í vanskilum. Þá segir í ákærunni að þeir hafi ekki staðið skil á skilagrein einkahlutafélagsins í nóvember árið 2009 á lögmæltum tíma og ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna, samtals 719 þúsund krónum. Tvímenningarnar opnuðu skemmtistaðinn Austur ásamt Ásgeiri Kolbeinssyni árið 2009. Félagið Austurstræti 7, sem hélt utan um reksturinn, varð gjaldþrota árið 201 og þá keypti Ásgeir staðinn.11 milljónir í virðisaukaskatt sem skilaði sér ekki Hallur Dan var sömuleiðis stjórnarformaður einkahlutafélagsins X 1050 sem stofnað var í kringum rekstur veitingahússins Laundromat. Valgarð Þórarinn var meðstjórnandi og daglegur stjórnandi með prókúru félagsins þar til 1. desember 2012. Eru þeir ákærðir fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum félagsins frá mars 2012 til apríl 2013 á lögmæltum tíma og fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri félagsins, samtals að upphæð 11.152.798 krónum. Þá segir í ákæru að þeir hafi ekki staðið skil á skilagreinum félagsins í ágúst, október, nóvember og desember árið 2012. Þá hafi þeir ekki staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda, sem haldið var eftir af launum starfsmanna ágúst til og með desember árið 2012 og febrúar og desember árið 2013. Samtals nemur upphæðin 4.399.738 varðandi hlut Valgarðs og samtals 8.593.653 varðandi hlut Halls. Laundromat varð gjaldþrota í febrúar árið 2014. Staðurinn var rekinn áfram með óbreyttu fyrirkomulagi af nýju félagi án aðkomu Halls og Valgarðs. Greint var frá því á dögunum að staðnum yrði lokað. Er þess krafist að Hallur Dan og Valgarð Þórarinn verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Mest lesið Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Einar hættir með Grillbúðina Viðskipti innlent Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hætta skerðingum til stórnotenda Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Ráðin forstöðumaður hjá OK Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Sjá meira