Viðskipti innlent

Meniga semur við franskan banka

Atli Ísleifsson skrifar
Bankastjóri BPCE samstæðunnar, François Pérol, tilkynnti samstarfið fyrr í vikunni á fjármálaráðstefnunni Paris Fintech Forum.
Bankastjóri BPCE samstæðunnar, François Pérol, tilkynnti samstarfið fyrr í vikunni á fjármálaráðstefnunni Paris Fintech Forum. Meniga
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hefur samið við BPCE, annan stærsta banka Frakklands, um að innleiða netbankalausnir Meniga.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Meniga. Þar segir að um fimmtán milljónir manna munu fá aðgang að hugbúnaði Meniga í gegnum bankann, en bankastjóri BPCE samstæðunnar, François Pérol, tilkynnti samstarfið í París fyrr í vikunni á fjármálaráðstefnunni Paris Fintech Forum.

Haft er eftir Braga Fjalldal, framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar og markaðsdeildar Meniga, að með því að innleiða hugbúnað Meniga geti BPCE boðið viðskiptavinum sínum margfalt betri þjónustu og notendaupplifun.

Bragi Fjalldal.Meniga
„Við stöndum á tímamótum þar sem bankar keppa ekki lengur bara við aðra banka heldur einnig tæknirisa á borð við Facebook, Google og Apple. Síðastliðið ár hefur verið það farsælasta í sögu Meniga og aldrei hafa fleiri bankar ákveðið að vinna með Meniga til að bæta snjallsíma- og netbanka umhverfi sitt og eiga í persónulegri samskiptum við viðskiptavini sína,“ segir Bragi.

Meniga var stofnað árið 2009 og eru starfs­menn í dag um hundrað. Hugbúnaður Meniga hefur verið innleiddur hjá yfir 70 fjármálastofnunum og er hann aðgengilegur yfir 50 milljónir manna í 23 löndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×