Viðskipti erlent

Sænskur „áhrifavaldur“ dæmdur fyrir duldar auglýsingar

Atli Ísleifsson skrifar
Kissie þarf að merkja auglýsingarnar betur á miðlum sínum.
Kissie þarf að merkja auglýsingarnar betur á miðlum sínum. Wikipedia
Sænskur dómstóll sakfelldi í gær sænska bloggarann og „áhrifavaldinn“ Kissie fyrir að vera með duldar auglýsingar á miðlum sínum.

Samkvæmt dómnum verður Alexandra „Kissie“ Nilsson að merkja færslur sínar með skýrum hætti ef um auglýsingar sé að ræða, ellegar eiga á hættu að þurfa að greiða 100 þúsund sænskar krónur í sekt, um 1,3 milljónir íslenska króna. SVT greinir frá málinu.

Sænski einkaleyfa- og markaðsdómstóllinn kvað upp dóm sinn í gær, en hann hafði tvær færslur á bloggi hennar og eitt á Instagram-síðu hennar frá vordögum 2016 til skoðunar. Telur dómurinn að færslurnar hafi ekki verið merktar með skilmerkilegum hætti til að almenningur gæti gert sér grein fyrir að um auglýsingu hafi verið að ræða.

Sjá einnig: Íslendingar blekktir: Duldar auglýsingar daglegt brauð á Snapchat

Færslurnar sem um ræðir voru duldar auglýsingar fyrirtækis sem selur notaða farsíma, en það var umboðsmaður neytenda í Svíþjóð sem stefndi bloggaranum í september 2016.

Gunnar Wikström, talsmaður embættisins, segir dóminn mikilvægan fyrir sænska neytendur og svokallaða „áhrifavalda“ sömuleiðis. Hann vonast til að þó að dómurinn snúi einungis að bloggaranum Kissie þá þurfi aðrir „áhrifavaldar“ nú einnig að breyta hegðun sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×