Viðskipti innlent

Helga hættir hjá Samtökum ferðaþjónustunnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Ernir
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, hefur verið ráðin til Bláa Lónsins og hefur störf 1. júní næstkomandi. Helga mun verða framkvæmdastjóri Blue Lagoon Journeys ehf, dótturfélags Bláa Lónsins, sem vinnur að þróunarverkefnum félagsins á sviði ferðaþjónustu. Ráðningin styður auknar áherslur Bláa Lónsins á þeim vettvangi. Starfið heyrir beint undir forstjóra og mun Helga taka sæti í stjórnendateymi Bláa Lónsins að því er segir í fréttatilkynningu.

Helga gegndi stöðu framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar í á fimmta ár en var þar áður framkvæmdastjóri VR.

„Umhverfi ferðaþjónustunnar er nú að taka byltingarkenndum breytingum ekki síst vegna stafrænnar þróunar og það er afar ánægjulegt að hafa fengið Helgu til liðs við Bláa Lónið til að leiða mjög áhugaverð verkefni á þeim vettvangi. Ég hef starfað með Helgu undanfarin 4 ár sem formaður SAF þar sem hún hefur unnið frábært starf. Bláa Lónið er í miklum vexti. Hjá okkur starfa nú rúmlega 700 manns en á næstu vikum opnum við nýtt upplifunarsvæði og hótel við Bláa Lónið. Starfsemi félagsins er í stöðugri þróun og mörg spennandi verkefni sem við vinnum nú að. Það er því mikill akkur af því að fá Helgu til liðs við okkur í þessi mikilvægu verkefni,“ segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins.

„Verkefni tengd frekari þróun og nýsköpun Bláa Lónsins eru spennandi og er gaman að fá að takast á við þau með öflugu starfsfólki og forstjóra, sem ég hef átt mjög gott og farsælt samstarf við á síðustu árum á vettvangi SAF.  Fyrirtækið er leiðandi í ferðaþjónustu á Íslandi og er það von mín að kraftar mínir og reynsla muni nýtast vel í þeim fjölmörgu þróunarverkefnum sem framundan eru,“ segir Helga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×