Viðskipti innlent

Jón Þór ráðinn for­stöðu­maður fyrir­tækja­ráð­gjafar Arcti­ca Finance

Hörður Ægisson skrifar
Jón Þór hefur 14 ára reynslu af störfum á fjármálamarkaði og hefur leitt eða komið að mörgum stærri fyrirtækjaráðgjafarverkefnum seinni ára.
Jón Þór hefur 14 ára reynslu af störfum á fjármálamarkaði og hefur leitt eða komið að mörgum stærri fyrirtækjaráðgjafarverkefnum seinni ára.
Jón Þór Sigurvinsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Arctica Finance. Hann tekur við starfinu af Stefáni Þór Bjarnasyni sem hefur frá stofnun verðbréfafyrirtækisins sinnt stöðu framkvæmdastjóra félagsins samhliða því að veita Fyrirtækjaráðgjöfinni forstöðu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arctica en Jón Þór, sem er einn af stofnendum félagsins, hefur 14 ára reynslu af störfum á fjármálamarkaði og hefur leitt eða komið að mörgum stærri fyrirtækjaráðgjafarverkefnum seinni ára.

Jón Þór var í Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans á árunum 2007 til 2008 en áður var hann hjá fjárfestingafélaginu Straumborg, þar sem hann bar ábyrgð á fjárfestingum félagsins í orkugeiranum ásamt því að sjá um veltubók. Frá 2004 til 2005 starfaði Jón Þór hjá Kjarnorkurannsóknarstofnun Frakklands, CEA.

Jón Þór er með B.Sc. gráðu í vélaverkfræði og tölvunarfræði fá HÍ, M.Sc. gráðu í orkuverkfræði frá Universite Joseph Fourier auk þess að hafa lokið löggildingu í verðbréfamiðlun. Jón Þór er giftur Guðrúnu Þorgeirsdóttur og eiga þau þrjár dætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×