Viðskipti innlent

Breyttu húsnæði Krossins í 102 herbergja hótel

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Búið er að reisa skilti með merki hótelkeðjunnar skandinavísku utan á Hlíðasmára 5-7.
Búið er að reisa skilti með merki hótelkeðjunnar skandinavísku utan á Hlíðasmára 5-7. first hotel kópavogur
Skandinavíska hótelkeðjan First Hotels mun um jólin opna dyr sínar fyrir gestum í gamla húsnæði trúfélags Krossins í Hlíðasmára 5-7. Herbergi hótelsins verða 102 talsins þegar uppi er staðið. Greint var frá fyrirheitunum í janúar á þessu ári á Vísi.

Lóa Bergljót Þorsteinsdóttir, hótelstjóri First Hotel Kópavogur, segir í samtali við Vísi að töluverðar framkvæmdir hafi átt sér stað undanfarið.

„Já, það þurfti að bæta við einni hæð og búið er að taka húsið algjörlega í gegn. Núna er það orðið stórglæsilegt.“

Stefnt er að opnun 26. desember, annan í jólum, og segir Lóa að bókanir séu strax farnar að berast.

„Það hafa verið bókanir frá fyrsta degi. Opnunarvikan er þokkalega þétt skipuð hjá okkur og við búumst við því að troðfullt verði á áramótunum,“ segir Lóa.

Við opnun verða 60 herbergi í boði en í febrúar verður húsnæðið fullbyggt og verða herbergin þá 102 talsins.

Trúfélagið Krossinn var, sem fyrr segir, rekið í sama húsnæði. Gunnar Þorsteinsson, sem oft var kenndur við félagið, var stjórnarformaður þess til ársins 2010. Þá tók dóttir hans, Sigurbjörg Gunnarsdóttir, við en húsnæðið var selt í fyrra.

First Hotels er skandinavísk hótelkeðja sem rekur alls 90 hótel víða um heim. Hótelið í gamla Krossinum er það fyrsta sem keðjan opnar hér á landi.

Hér að neðan má sjá myndir úr framkvæmdunum á Facebook-síðu hótelsins.


Tengdar fréttir

Opnar 105 herbergja hótel í gamla húsnæði Krossins

Hótelið sem skandinavíska hótelkeðjan First Hotels ætlar að opna í Hlíðasmára 5-7 í Kópavogi, þar sem trúfélagið Krossinn, síðar Smárakirkja, var áður til húsa, verður með 105 herbergjum. Engin gestamóttaka verður á hótelinu heldur munu gestir sjá um að innrita sig sjálfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×