Viðskipti innlent

Dæmi um sex þúsund króna verðmun á borðspilum

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Heimkaup lækkaði verð sitt töluvert til þess að mæta samkeppni.
Heimkaup lækkaði verð sitt töluvert til þess að mæta samkeppni. vísir

Vefverslunin Heimkaup hefur lækkað verð sitt á spilinu Teninga Alias eftir að bent var á verðmun þeirra í samanburði við Elko. Munurinn var um það bil sjöfaldur, en hjá Heimkaup kostaði spilið 6.990 kr. samanborið við 995 kr. hjá Elko. Markaðsstjóri Heimkaupa segir lækkunina til þess fallna að viðskiptavinir geti notið góðs af samkeppni. Upphaflega vakti árvökull neytandi athygli á verðmuninum á Facebook.



Spilið kostar nú 990 kr. hjá Heimkaup en Jóhann Þórsson, markaðsstjóri fyrirtækisins, segir að í raun sé verið að greiða spilið niður fyrir fólk.



„Spilið kostar í innkaupum nálægt 3.500 kr. Í þessu tilviki er ELKO held ég að fá spilið á rosalegum afslætti frá birgja,“ segir Jóhann og bætir við að nú tapi fyrirtækið á því að selja spilið.



„Við töpum á því að selja þessa vöru.“



Hann segir það vissulega koma fyrir að önnur fyrirtæki selji vörur á ódýrara verði en Heimkaup. Sé munurinn mikill er lítið annað í stöðunni en að lækka verðið og mæta samkeppninni.

Teninga Alias er allavega tveggja ára gamalt.

Losa sig við þriggja ára gamlan lager

Í samtali við Vísi segir Örn Ægir Barkarson, vörustjóri afþreyfingardeildar Elko, að ástæðan fyrir lágu verði sé sú að verið sé að reyna að losa sig við gamlan lager af spilinu.



„Þetta er þriggja ára gamalt spil og það kostar okkur að geyma vörur,“ segir hann og bendir á að fyrirtækið sé yfirleitt með eldri borðspil til sölu á lágu verði.



Segir hann að fá eintök séu eftir af umræddu teningaspili. Það verði að öllum líkindum uppselt fyrir helgi.



Ekki bara Heimkaup með hærra verð

Halldór S. Guðjónsson, sölustjóri hjá Myndform, umboðsaðila Alias hér á landi, staðfestir í samtali við Vísi að spilið sé annaðhvort tveggja eða þriggja ára gamalt.



Það virðist þó vera algengara en ekki að verslanir selji spilið töluvert hærra en í tilviki Elko. Til að mynda kostar það 6.999 kr. hjá Pennanum Eymundsson og 6.480 kr. hjá Spilavinum samkvæmt upplýsingum sem fram koma á heimasíðum verslananna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×