Viðskipti innlent

Kosið í stjórn Íslenska viðskiptaráðsins í Japan

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Frá aðalfundinum þann 7. desember síðastliðinn.
Frá aðalfundinum þann 7. desember síðastliðinn. sendiráð íslands í tókýó
Kosið var í stjórn Íslenska viðskiptaráðsins í Japan á aðalfundi þann 7. desember síðastliðinn. Bolli Thoroddsen framkvæmdastjóri Takanawa Japan K.K. var endurkjörinn formaður, Manabu Fukuda stjórnarmaður Fulbright sjóðsins í Japan var kjörinn varaformaður og Halldór Elís Ólafsson viðskiptafulltrúi sendiráðs Íslands í Japan, var skipaður aðalritari.

Aðrir stjórnarmenn sem kosnir voru eru Akiko Hasegawa, fyrrv. viðskiptafulltrúi íslenska sendiráðsins í Japan, Hirotaka Ueno, forstjóri Cross Alliance Group, Kenta Inaba framkvæmdastjóri COAST Corporation, umboðsaðila Hampiðjunnar í Japan, Kaoru Nozu aðalfulltrúi Takanawa Pharamceutical og Shoko Nireki framkvæmdastjóri Össur Japan.

Fundurinn fór fram í sendiráði Íslands í Tókýó, en sendiráðið hefur umsjón með starfi ráðsins. Heiðursformaður ráðsins er Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Japan.

Í tilkynningunni segir að ráðið fagni fyrirhugaðri undirritun tvísköttunarsamnings Íslands og Japans.

„Viðskiptaráðið fagnar ráðgerðri undirritun tvísköttunarsamnings Íslands og Japans í janúar á næsta ári en ráðið hefur undanfarin ár beitt sér fyrir því að Ísland og Japan hefji viðræður um samninga sem snúa að fríverslun, tvísköttun, loftferðum og gagnkvæmum tímabundnum atvinnuréttindindum.“

Ráðið var stofnað árið 2003 í því skyni að stuðla að auknum viðskiptum milli Íslands og Japans. Íslenska viðskiptaráðið er auk íslenska sendiráðsins helsti fulltrúi íslenskra viðskiptahagsmuna í Japan. Viðskiptaráðið mun starfa eins og kostur er með japanska viðskiptaráðinu á Íslandi og sendiráði Íslands í Japan við að efla viðskipta- og fjárfestingaumhverfi fyrir íslensk fyrirtæki í Japan. Viðskiptaráðið starfar einnig náið með öðrum erlendum viðskiptaráðum í Japan og er meðlimur Evrópska viðskiptaráðsins í Japan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×