Viðskipti innlent

Jói Fel kaupir bakarí á Selfossi og Hellu

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Jói Fel hefur keypt Guðnabakarí og Kökuval en hann tekur við rekstrinum um áramótin.
Jói Fel hefur keypt Guðnabakarí og Kökuval en hann tekur við rekstrinum um áramótin. Vísir/GVA
„Já, það er rétt,  ég er búin að kaupa Guðnabakarí á Selfossi og Kökuval á Hellu og tek við rekstri þeirra um áramótin. Bæði eru þessi bakarí flott og verða í svipuðum rekstri áfram en það verður þó smátt og smátt Jóa Fel stíll á þeim“, segir Jóhannes Felixson bakarameistari, betur þekktur sem Jói Fel, aðspurður hvort hann væri búinn að kaupa bakaríin.

Engar uppsagnir verða samhliða kaupunum, starfsmenn á báðum stöðunum munu halda vinnu sinni. Eftir kaupin verður Jói Fel eigandi sjö bakaría með yfir 100 starfsmenn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×