Erlent

29 grunaðir ISIS-liðar handteknir í Ankara

Atli Ísleifsson skrifar
Um 37 þúsund lögreglumenn munu verða á vakt í milljónaborginni Istanbúl á gamlárskvöldi.
Um 37 þúsund lögreglumenn munu verða á vakt í milljónaborginni Istanbúl á gamlárskvöldi. Vísir/AFP
Lögregla í Tyrklandi hefur handtekið 29 grunaða liðsmenn hryðjuverkasamtakanna ISIS í höfuðborginni Ankara. Um fimm hundruð lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum, en húsleit var gerð á fjölda staða víðs vegar í borginni.

Fréttastofan Anatolia greinir frá því að handtökurnar bendi til að hinir handteknu hafi ætlað sér að fremja hryðjuverk á gamlárskvöldi.

39 manns létu lífið í árás ISIS-liðans og Úsbekans Abdulkadir Masharipov á skemmtistað í Istanbúl á gamlárskvöldi fyrir tæpu ári. Masharipov var handtekinn í Istanbúl þann 17. janúar.

Mikil öryggisgæsla er fyrirhuguð í Istanbúl á gamárskvöldi þar sem um 37 þúsund lögreglumenn munu verða á vakt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×