Gylfi og félagar töpuðu fyrir Bournemouth

Dagur Lárusson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson
Gylfi Þór Sigurðsson Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton töpuðu fyrir Bournemouth 2-1 þar sem Ryan Fraser skoraði tvö mörk fyrir Bournemouth

Það voru heimamenn í Bournemouth sem voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og náðu þeir að skora á 33.mínútu en þar var að verki Ryan Fraser og var staðan 1-0 í leikhlé.

Gestirnir mættu ákveðnir til leiks í seinni hálfleiknum og náðu strax að jafna leikinn á 57. mínútu en þar var á ferðinni Idrissa Gueye eftir varnamistök hjá leikmanni Bournemouth.

Bournemouth hélt þó áfram þrátt fyrir jöfnunamark Everton og náði forystunni á nýjan leik á 88. mínútu en þá skoraði Ryan Fraser aftur og tryggði heimamönnum sigurinn.

Eftir leikinn er Everton í 9.sæti með 27 stig á meðan Bournemouth er í 13.sæti með 20 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira