Markalaust á Old Trafford

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Paul Pogba skorar en markið var dæmt af vegna rangstöðu.
Paul Pogba skorar en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Vísir/Getty
Manchester United og Southampton gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Leikurinn var lítið fyrir augað. Dýrlingarnir vörðust vel og gáfu fá færi á sér. United-menn voru afar bitlausir og sköpuðu lítið.

United, sem er búið að gera þrjú jafntefli í röð, situr í 3. sæti deildarinnar.

Southampton er í 13. sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira