Viðskipti innlent

Jóna Bjarnadóttir ráðin forstöðumaður umhverfisdeildar hjá Landsvirkjun

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Jóna Bjarnadóttir.
Jóna Bjarnadóttir. landsvirkjun
Jóna Bjarnadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður umhverfisdeildar á þróunarsviði Landsvirkjunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Umhverfisdeildin hefur það hlutverk að leiða metnaðarfullt umhverfisstarf fyrirtækisins þar sem kolefnishlutlaus starfsemi, betri nýtingu auðlinda og starfsemi í sátt við náttúru og ásýnd er höfð að leiðarljósi. Helstu verkefni deildarinnar fela í sér rekstur umhverfisstjórnunarkerfis, umhverfisrannsóknir og mótvægisaðgerðir,  og önnur sértæk verkefni tengd málaflokknum.

Jóna hefur starfað hjá Landsvirkjun frá árinu 2014 sem verkefnisstjóri og hafa hennar verkefni meðal annars snúið að mati á umhverfisáhrifum nýrra virkjana og stjórnun umhverfismála vegna byggingar Þeistareykjavirkjunar. Áður starfaði hún sem ráðgjafi lengst af hjá Mannviti þar sem hún var einnig umsjónarmaður umhverfisstjórnunarkerfis.

Jóna er með M.Sc. próf í umhverfisstjórnun og stefnumótun frá Lundarháskóla og B.Sc. próf í lífefnafræði frá Háskóla Íslands.

Hún er gift Stefáni Jónssyni efnafræðingi og eiga þau þrjár dætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×