Viðskipti innlent

Fjármálaráðherra: Ríkissjóður hefur aldrei tekið lán á hagstæðari kjörum

Hörður Ægisson skrifar
"Viðbrögð fjárfesta var vel umfram væntingar en eftirspurn var ríflega átta sinnum meiri en framboðið,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
"Viðbrögð fjárfesta var vel umfram væntingar en eftirspurn var ríflega átta sinnum meiri en framboðið,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. Vísir/Anton
Íslenska ríkið hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, jafnvirði 61,5 milljarði íslenskra króna, sem bera 0,5 prósent fasta vexti og eru gefin út til fimm ára á ávöxtunarkröfunni 0,56 prósent.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir þessa skuldabréfaútgáfu marka tímamót enda hafi ríkissjóður „aldrei tekið lán á hagstæðari kjörum,“ að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þar segir jafnframt að fjárfestar hafi sýnt útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurnin um 3,9 milljörðum evra, eða ríflega áttfaldri fjárhæð útgáfunnar. Samanstendur fjárfestahópurinn af seðlabönkum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Evrópu.

„Viðbrögð fjárfesta var vel umfram væntingar en eftirspurn var ríflega átta sinnum meiri en framboðið. Þátttakan í endurkaupunum og eftirspurn eftir nýju útgáfunni er merki um traust fjárfesta og er viðkurkenning á þeim góða árangri sem náðst hefur ríkisfjármálum og við stjórn efnahagsmála. Hækkun lánshæfismats Fitch í síðustu viku hefur án efa einnig haft jákvæð áhrif. Aðgerðin er liður í að framfylgja langtímastefnu í lánamálum ríkisins þar sem markmiðin eru meðal annars þau að tryggja aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum til lengri tíma og að stórum og fjölbreyttum hópi fjárfesta og setur mikilvægt viðmið á hagstæðum kjörum fyrir aðra sem þurfa aðgang að erlendum lánsfjármörkuðum," segir Bjarni.

Samhliða nýju útgáfunni gerði ríkissjóður tilboð í eldri skuldabréfaútgáfu frá árinu 2014 sem nam 750 milljónum evra. Eigendur bréfa að nafnvirði 397,6 milljónir evra eða, um 49 milljarðar króna, tóku tilboði ríkissjóðs og fengu þeir sem vildu forgang í nýju útgáfunni. Heildarskuldsetning ríkissjóðs eykst um 12,5 milljarða króna við aðgerðina, að því er segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×