Viðskipti innlent

Ferðagleði landans stóreykur kortaveltu erlendis

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Efnahagsmoli er liður hjá Íslandsbanka þar sem fjallað er um fjármál.
Efnahagsmoli er liður hjá Íslandsbanka þar sem fjallað er um fjármál. Vísir/Anton Brink
Mikill vöxtur er enn í kortaveltu Íslendinga og gefur hann til kynna að einkaneysla vaxi enn hratt. Sér í lagi er vöxturinn hraður á erlendri grundu, og er útlit fyrir að þjónustuafgangur verði með minna móti á síðasta fjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram í liðnum „Efnahagsmoli“ sem Íslandsbanki stendur fyrir. Greinina skrifar Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur bankans.

Vöxtur kortaveltu Íslendinga nam tæplega 12 prósentum í nóvember að raunvirði milli ára, samkvæmt tölum Seðlabankans. Sér í lagi var vöxturinn mikill í erlendri kortaveltu en einnig talsverður innanlands. Vöxtur erlendu kortaveltunnar nam 23 prósentum en innlendu 9 prósentum.

Erlend netverslun og ferðagleði helstu þættir aukningar

Aukning í utanlandsferðum Íslendinga veldur því að kortavelta utan landsteinanna vex margfalt hraðar en veltan innanlands. Erlend netverslun landsmanna spilar einnig stóran þátt. Hægst hefur á vexti erlendra korta hér á landi og er það í takt við hægari fjölgun ferðamanna hingað til lands.

Það sem af er fjórða ársfjórðungi nemur raunvöxtur kortaveltu að jafnaði tæplega 13 prósent á milli ára. Bætt hefur í vaxtarhraðann á sama tíma og dregið hefur úr aukningu kaupmáttar launa. Bendir það til þess að einkaneysla vaxi enn hröðum skrefum þrátt fyrir hægari kaupmáttarvöxt, og að árið 2017 muni heimilin hugsanlega byrja að ganga á sparnað í einhverjum mæli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×