Viðskipti innlent

Óskabein kaupir fjórðungshlut í Endor

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Fannar Ólafsson hjá Óskabeini og Gunnar Guðjónsson hjá Endor.
Fannar Ólafsson hjá Óskabeini og Gunnar Guðjónsson hjá Endor. óskabein
Fjárfestingfélagið Óskabein, sem meðal annars á stóran hlut í VÍS, hefur gengið frá kaupum á fjórðungshlut í íslenska upplýsingatæknifyrirtækinu Endor. Segir í tilkynningu frá Óskabeini að um sé að ræða lið í uppbyggingu Endor sem félags á alþjóðlegum markaði.

Endor er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í að hámarka rekstrarhagkvæmni fjárfestinga í upplýsingatækni og nýtir til þess nýjustu tækni í sjálfvirknivæðingu, ásamt því að vinna með virtum samstarfsaðilum víða um heim.

Gunnar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Endor, segir verkefnið spennandi.

„Það er fagnaðarefni fyrir ungt félag að fá öfluga fjárfesta í ferðalagið. Tekjur Endor hafa aukist tífalt árlega síðustu ár og útlit er fyrir sama vöxt í ár. Viðtökur við áherslum okkar hafa verið frábærar og verkefnastaða er sterk hérlendis. Félagið hefur verið í spennandi verkefnum erlendis svo aðkoma Óskabeina að félaginu styður einstaklega vel við framhaldið“.

Fannar Ólafsson, einn af eigendum Óskabeins, telur að nú sé rétti tíminn til þess að stíga áfram með félagið.

„Vöxtur Endor ár frá ári hefur verið gríðarlegur, enda eru starfsmenn og stjórnendur félagsins þungavigtarmenn í greininni. Við teljum þetta rétta tímann til að taka næsta skref með félagið og mun þessi fjárfesting auðvelda félaginu að sækja á nýja markaði og vaxa“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×