Viðskipti innlent

Ráðast gegn losun koltvísýrings með hlutafjáraukningu upp á 1,5 milljarð

Daníel Freyr Birkisson skrifar
CRI er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki.
CRI er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki. carbon recycling international
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Carbon Recycling International (CRI) hefur gefið það út að það leggist í stóraukna öflun hlutafjár á næsta ári. Stefnan er að auka féð um 1,5 milljarð til að fjárfesta beint í nýjum verksmiðjuverkefnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Megináhersla í starfsemi CRI á næstu árum er að mæta spurn eftir lausnum til að draga úr losun koltvísýrings og nýta strandað vetni eða raforku til framleiðslu á metanóli í Evrópu og Kína. Það er markmið félagsins að verksmiðjur byggðar á tækni þess endurnýti a.m.k. 750.000 tonn af koltvísýringi árlega árið 2021. Það yrði veglegt lóð á vogarskálarnar, þar sem leita þarf stórtækra lausna til þess að draga úr losun og notkun á jarðefnaeldsneyti á komandi áratug,“ segir í fréttatilkynningunni.

Margrét O. Ásgeirsdóttir, fjármálastjóri CRI, segir rekstur þeirra verksmiðja sem nýta sér tæknilausn CRI arðbæran.

„Bygging og rekstur þeirra verksmiðja, sem nýta tæknilausn CRI, er arðbær miðað við núverandi lagaumhverfi og regluverk, og því góð fjárfesting. Opinber stefna stjórnvalda á okkar markaðssvæðum er á þá vegu að vænta megi enn frekari arðbærni, hvort sem aðgerðir komi til með að vera í formi hvata fyrir umhverfisvænt eldsneyti og efnavöru eða skattlagningu og kvaðir fyrir þá sem menga.“

Líta björtum augum til framtíðar

Hún segir horfur fyrirtækisins góðar.

„Endurnýting koltvísýrings til þess að draga úr olíunotkun er hluti þeirra aðgerða sem alþjóðasamfélagið þarf að leggja áherslu á til að sporna gegn hröðum loftslagsbreytingum. Við höldum því ótrauð áfram að leiða veginn til grænni framtíðar, með einstaka þekkingu okkar og reynslu að leiðarljósi.“

Verksmiðja CRI var gangsett í Svartsengi árið 2012. Verksmiðjan er sú eina sinnar tegundar í heiminum sem umbreytir koltvísýringi sem losaður er í andrúmsloftið og vetni sem unnið er með rafgreiningu vatns í metanól sem hægt er að nota sem fljótandi kolefnishlutlaust eldsneyti eða hráefni í umhverfisvænni neytendavörur, svo sem plastefni, málningu og húsgögn. CRI var á lista Deloitte yfir 500 hraðast vaxandi tæknifyrirtæki Evrópu og nemur aukning veltu þess 440 prósentum á síðustu fjórum árum. Í dag er CRI að setja upp tvær nýjar verksmiðjur í Evrópu, byggðar á tækni- og þekkingu fyrirtækisins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×