Handbolti

Viggó með stórleik í tapi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Viggó í leik með Gróttu gegn ÍR á síðasta tímabili.
Viggó í leik með Gróttu gegn ÍR á síðasta tímabili. vísir/ernir
Westwien tapaði fyrir Fivers í austurrísku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Lokatölur urðu 35 en staðan var 19-15 fyrir heimamenn í Fivers í leikhléi.

Viggó Kristnánsson og Ólafur Ragnarsson fóru fyrir gestunum í markaskorun. Viggó skoraði heil 13 mörk, þar af fimm af vítalínunni. Ólafur skoraði 7 mörk.

Westwien er í þriðja sæti deildarinnar eftir fjórtán umferðir en Fivers fóru á toppinn með sigrinum og jók liðið forskot sitt á Westwien í sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×