Enski boltinn

Clatten­burg hættur og segist hafa verið skot­mark sér­fræðinga

Smári Jökull Jónsson skrifar
Clattenburg í stúkunni á leik Nottingham Forest og Liverpool fyrr á tímabilinu.
Clattenburg í stúkunni á leik Nottingham Forest og Liverpool fyrr á tímabilinu. Vísir/Getty

Mark Clattenburg hefur sagt upp störfum sem dómararáðgjafi hjá enska úrvalsdeildarliðinu Nottingham Forest. Lið Forest fékk á sig kæru í dag vega yfirlýsinga félagsins á samfélagsmiðlum.

Fyrrum dómarinn Mark Clattenburg var ráðinn til Nottingham Forest í febrúar sem ráðgjafi félagsins í dómaramálum. Hann var sá fyrsti til að vera ráðinn í slíkt starf hjá liði í deildinni og var ekki lengi að koma sér í fréttirnar.

Nottingham Forest hefur látið fyrir sér fara í umræðu um dómara og eftir tap liðsins gegn Everton á Goodison Park var myndbandsdómarinn Stuart Atwell sakaður um að vera aðdáandi Luton sem á í harðri fallbaráttu við lið Forest. Sögðu þeir Atwell hafa sleppt því að dæma augljósar vítaspyrnur sem Forest átti að fá í leiknum.

Í dag birtist síðan yfirlýsing frá félaginu þar sem greint var frá afsögn Mark Clattenburg. Þar segir hann að hann hafi tekið starfið að sér í góðri trú og í þeirri von að reynsla hann myndi nýtast liði Nottingham Forest í að öðlast hvernig ákvarðanir í leikjum eru teknar á lykilaugnablikum.

„Hins vegar er það augljóst að ráðgjafastörf mín hafa orsakað núning á milli Nottingham Forest og annarra aðila. Ágreiningurinn hefur skapað vandræði fyrir Nottingham Forest frekar en að hjálpa félaginu og ég gerðu að skotmarki af ákveðnum aðilum og sérfræðingum,“ er haft eftir Clattenburg í yfirlýsingu Forest.

Félagið, knattspyrnustjórinn og leikmaður kærðir

„Við áttum ekki von á þessum viðbrögðum og finnst þau miður, sérstaklega í því ljósi að ég tel þörf fyrir starf eins og þetta í knattspyrnunni. Ég er þakklátur Nottingham Forest fyrir tækifærið og óska þeim alls hins besta,“ var ennfremur haft eftir Clattenburg.

Eftir að yfirlýsing Forest var gefin út var tilkynnt að enska knattspyrnusambandið hefði lagt fram kæru gagnvart Nottingham Forest vegna yfirlýsingu félagsins varðandi störf Stuart Atwell í umræddum leik Nottingham Forest og Everton.

Knattspyrnustjórinn Nuno Espirito Santo og bakvörðuinn Neco Williams voru einnig kærðir vegna ummæala þeirra eftir leik og þá fékk Clattenburg viðvörun. Félagið hefur til 9. maí til að svara fyrir gjörðir sínar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×