Viðskipti innlent

Fossar styrkja Kraft um 6,7 milljónir

Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa markaða, afhendir Ástrósu Rut Sigurðardóttur, formanni Krafst, afrakstur Takk dagsins í húsakynnum Fossa í Reykjavík.
Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa markaða, afhendir Ástrósu Rut Sigurðardóttur, formanni Krafst, afrakstur Takk dagsins í húsakynnum Fossa í Reykjavík. Aðsend/BIG
Alls söfnuðust rúmlega 6,7 milljónir króna á Takk-degi Fossa markaða, sem var haldinn í þriðja sinn 23. nóvember síðastliðinn, og rann upphæðin óskipt til styrktar Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda. Er þetta hæsti einstaki styrkur sem Kraftur hefur hlotið frá stofnun félagsins árið 1999.

Þetta kemur fram í tilkynningu Fossa markaða og Krafts. Takk-dagur Fossa er árvissur atburður þar sem þóknanatekjur vegna viðskipta dagsins eru látnar renna til góðs málefnis. Að auki taka Kauphöllin, Nasdaq Iceland, og uppgjörsfyrirtækið T plús þátt í deginum með þeim hætti að fella niður öll gjöld af viðskiptum Fossa, sem í staðinn renna til stuðningsfélagsins.

„Við erum afar ánægð með framtak Fossa og þakklát fyrir þann stuðning sem okkur er sýndur. Frá stofnun 1999 hefur Kraftur ekki áður hlotið jafn stóran styrk í einu lagi og nú. Styrkurinn kemur til góðra nota í starfsemi Krafts, en um 70 einstaklingar á aldrinum 18 til 40 ára greinast hér á landi með krabbamein ár hvert,“ segir Ástrós Rut Sigurðardóttir formaður Krafts.

Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa markaða, segir að árangurinn nú hafi farið fram úr björtustu vonum. 

„Það hefur verið ákveðinn stígandi í þessu frá því að við byrjuðum með Takk daginn og erum við afar þakklát fyrir hversu vel þessu framtaki hefur verið tekið,“ segir Haraldur. Í fyrra söfnuðust um fjórar milljónir króna sem runnu til Barnaspítala Hringsins og árið áður naut Mæðrastyrksnefnd góðs af afrakstrinum.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×