Viðskipti innlent

Viðhorf til íslenskrar framleiðslu almennt jákvætt

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Bryndís Skúladóttir.
Bryndís Skúladóttir. SI
Viðhorf til íslenskrar framleiðslu er almennt jákvætt á meðal Íslendinga. Þetta kom fram í erindi Bryndísar Skúladóttur, sviðsstjóra framleiðslusviðs Samtaka iðnaðarins. Samtökin héldu í gær framleiðsluþing sem fram fór í Hörpu.

Niðurstöðurnar eru byggðar á Gallup-könnun en samkvæmt henni eru 81 prósent jákvæðir fyrir íslenskum framleiðsluvörum og 77 prósent jákvæðir gagnvart íslenskum framleiðslufyrirtækjum.

Þegar spurt var hvað væri það fyrsta sem viðkomandi dytti í hug þegar hugsað væri um íslensk framleiðslufyrirtæki og íslenskar framleiðsluvörur sýndu niðurstöðurnar að flestir nefndu eitthvað jákvætt og voru nokkur orð sem voru oftar nefnd en önnur líkt og íslenskt já takk, gæði, fiskur, atvinna, skyr, hreinleiki, mjólkurvörur, hrein orka, góðar vörur, sjávarútvegur, matvörur o.s.frv. Þó nokkrir nefndu orðið dýrt en Bryndís sagði að það þyrfti ekki endilega að vera neikvætt því yfirleitt fylgdi gæðum að vera á hærra verði.

Uppruni og gæði eiga stóran þátt

Þegar spurt var hvers vegna íslenskar vörur væru valdar voru flestir sammála því að það væri vegna upprunans og gæðanna. Færri voru sammála þeim fullyrðingum að íslensk framleiðslufyrirtæki væru samfélagslega ábyrg og að íslenskar framleiðsluvörur væru frumlegar. Þá voru 61 prósent sammála því að geta hugsað sér að vinna hjá íslensku framleiðslufyrirtæki.

Í máli sínu vék Bryndís einnig að mikilvægi nýsköpunar fyrir framleiðsluiðnaðinn og sagði að stjórnvöld þyrftu að gera betur í að hvetja til rannsókna og þróunar. Hún sagði að lönd sem væru leiðandi í framleiðslu væru í stöðugri nýsköpun og fjárfestu í rannsóknum og þróun. Almennt væri framlag til rannsókna og þróunar ekki hátt hér á landi í alþjóðlegum samanburði en um helmingur fyrirtækja í framleiðsluiðnaði hér á landi stundaði nýsköpun 2014-2016. Bryndís sagði að það hlutfall þyrfti að hækka.

Vísir var með beina útsendingu frá Framleiðsluþingi SI í gær en hana má nálgast hér. Erindi Bryndísar hefst á mínútu 29:17.

 


Tengdar fréttir

Vill fjölga sendiherrum íslensks iðnaðar

Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins skorar á stjórnvöld að einfalda stjórnsýslu byggingamála í landinu. Furðar sig á því af hverju ekki er keypt meira af íslenskri hönnun í opinberar byggingar. Samkeppnisstaðan oft verið betri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×