Viðskipti erlent

Paradísarskjölin: Viðskiptaráðherra Trump í slagtogi með tengdasyni Pútin

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Donald Trump bendir hér á Wilbur Ross, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna.
Donald Trump bendir hér á Wilbur Ross, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Wilbur Ross, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, á í umfangsmiklum viðskiptum með tengdasyni Vladimir Pútin, forseta Rússlands, í gegnum net aflandsfélaga.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í Paradísarskjölunum sem bárust þýska dagblaðinu Süddeutsche Zeitung og rannsóknarblaðamenn hafa unnið úr á síðustu vikum og mánuðum.

The Guardian fjallar um tengsl Ross við Rússland. Þar kemur fram að Ross eigi hluti í skipafyrirtækinu Navigator. Ross er milljarðamæringur og náinn vinur Trump. Hann losaði sig ekki við hlut sinn í skipafyrirtækinu þegar hann tók við embætti viðskiptaráðherra.

Navigator á í hagkvæmu viðskiptasambandi með Sibur, rússnesku gasfélagi, sem meðal annars er í eigu Kirill Shamalov, eiginmanns Katerina Tikhononva, dóttur Rússlandsforseta. Í Guardian kemur fram að þetta þýði að Ross muni hagnast á viðskiptum við rússneskt félag sem rekið er að fjölskyldu Pútín, sem og sumum af nánustu ráðgjöfum.

Þar segir einnig Navigator hafi aukið samstarf sitt við Sibur árið 2014, á sama tíma og Bandaríkin og Evrópusambandið settu á umfangsmikið viðskiptabann á Rússland vegna aðgerða ríkisins í Úkraínu og Krímskaga. Alls hefur Navigator hagnast um 68 milljónir dollara frá 2014 á samstarfinu við Sibur.

Wilbur Ross er einn nánasti vinur Donald Trump.Vísir/Gettur

„Það virðist vera Rússi í hverjum skáp“

Lítið virðist hafa verið farið ofan í saumana á viðskiptasögu Ross áður en hann tók við embætti. Sérfræðingar sem Guardian leitaði til telja að viðskipti Ross í Rússlandi valdi áhyggjum.

„Ég skil ekki hvernig einhver getur hafa tekið þá ákvörðun að standa í þessum viðskiptum eftir að hann tekur við háttsettri stöðu í ríkisstjórninni,“ segir Daniel Fried sem starfaði við málefni Evrópu og Rússlands í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna. „Hvað er hann að spá?“

„Þetta kemur mér mjög á óvart en kannski ætti þetta ekki að gera það vegna þess að það undir stjórn þessarar ríkisstjórnar virðist vera Rússi í hverjum skáp,“ sagði Peter Harrell, háttsettur embættismaður í utanríkisráðuneytinu í forsetatíð Barack Obama.

Tengsl Donald Trump við Rússland hafa verið í deiglunni að undanförnu, ekki síst að sérstakur rannsakandi var skipaður til að rannsaka möguleg afskipti Rússland af forsetakosningunum þar í landi á síðasta ári, sem og hugsanlegu samráði Rússa við kosningastjórn Trump.

Í Paradísarskjölunum kemur einnig fram að Ross hafi átt hlut í tugum aflandsfélaga en hann hefur gefið sig út fyrir að vera einn helsti stuðningsmaður áætlunar Bandaríkjaforseta um að ná í peninga frá aflandssvæðum, líkt og hann lofaði í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar.

Nánar er fjall um viðskipti Ross í Rússlandi á vef The Guardian. 

Í gær var greint frá umfangsmiklum gagnaleka sem varpar ljósi á eignir og fjárhag sumra af ríkustu einstaklingum heims. Um er að ræða 12,4 milljónir skjala sem nefnd hafa verið Paradísarskjölin, sem flest eru frá lögmannsstofunni Appleby á Bermúda-eyjum sem sérhæfir sig í aflandsviðskiptum. Í flestum tilvikum er um lögleg viðskipti að ræða. Í skjölunum eru einnig upplýsingar úr 19 fyrirtækjaskrám á þekktum lágskattasvæðum eins og Möltu, Bermúda og Cayman eyjum.

Þýska blaðið Süddeutsche Zeitung heldur úti sérstakri vefsíðu á ensku þar sem helstu fréttir úr lekanum munu birtast. Hér er hlekkur á þá síðu.

Vefsíðu ICIJ má svo finna hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×