Viðskipti innlent

Marta nýr formaður hjúkrunarráðs Landspítalans

Atli Ísleifsson skrifar
Marta Jónsdóttir.
Marta Jónsdóttir. Landspítali
Marta Jónsdóttir tók við stöðu formanns hjúkrunarráðs Landspítala í byrjun mánaðar. Hún tekur við stöðunni af Guðríði Kristínu Þórðardóttur sem hefur verið formaður ráðsins síðastliðin þrjú ár.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum. Allir hjúkrunarfræðingar og ljósmæður spítalans eiga sæti í ráðinu.

„Hlutverk hjúkrunarráðs er meðal annars að vera faglegur, ráðgefandi vettvangur fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður Landspítala og stjórnendur hans. Hjúkrunarráð á frumkvæði að og er vettvangur umræðna um hjúkrun innan stofnunar og utan. Hjúkrunarráð hvetur til þess að hjúkrun á Landspítala sé byggð á gagnreyndri þekkingu þar sem markmiðið er að veita árangursríka hjúkrun.

Marta útskrifaðist með BSc í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 2010 og MPM gráðu frá Háskólanum í Reykjavík í júní 2017. Hún vann á hjartadeild Landspítala með námi til 2012,  síðan á hjartaþræðingarstofu til 2014. Hún var aðstoðardeildarstjóri á meltingar- og nýrnadeild frá 2014-2016.

Frá hausti 2016 hefur Marta verið verkefnastjóri á menntadeild. Helstu verkefni hennar hafa verið námskeið sem miða að því að bæta öryggi og efla teymisvinnu meðal starfsfólks Landspítala,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×