Mínútur um myndlist Bjarki Bragason skrifar 19. október 2017 07:00 Þessi brot eru hlutar af minningum um myndlistarverk sem ég hef séð, öll bara einu sinni og á frekar hraðri yfirferð um sýningar þar sem ég reyndi að ná inn sem mestu á sem skemmstum tíma, á sýningum með hundruðum verka eftir óteljandi listamenn. Samt sem áður hugsa ég um þessi verk daglega.1. Kona spilar á forsögulega flautu fyrir fugl. Flautan fannst í fornleifauppgreftri á því svæði þangað sem fuglinn á rætur sínar að rekja og er eitt elsta hljóðfæri sem vitað er um. Dýrið hlustar á tónana, eða verður fyrir því að vera í sama rými og tónarnir, á meðan manneskjan gerir tilraunir til þess að framkalla hljóðin. Óljóst er hvort laglínan er lík því sem hljóðfærið var smíðað til þess að flytja, enda engin leið til þess að grafa þá þekkingu upp úr kandífloss-massa árþúsundanna, né eiga samskipti við fuglinn um hvort hann þekki hljóðin hundrað þúsund ættliðum seinna og eftir að hafa verið alinn í gæludýraverksmiðju. [1]2. Í hringlaga turnbyggingu fyrrverandi fangelsis í smábæ eru litlir hamrar áfastir veggjunum, þeir höggva taktfast og endalaust í múrsteinana. Einhvern tíma, ef til vill, munu þeir ná í gegn. [2]3. Prestur sem dæmdur var í nauðungarvist í fangabúðum nasista var skipaður til þess að sjá um plönturækt og landbúnað í fangavist sinni. Í embætti sínu og annars staðar hafði hann talað gegn stjórnvöldum og hlotið í staðinn það hlutverk að rækta jurtir í miðdepli eyðingar og dauða. Presturinn þróaði nýjar tegundir af eplum í fangabúðunum, og málaði af þeim hundruð mynda. Eitt afbrigði þessara epla er enn ræktað. Þú bítur í það og súrsætur safinn seytlar um munnvikin, eitthvert sambland hryllings og vonar. [3] Þessi verk eru vegna hughrifa orðin hluti af glærunni sem ég horfi í gegn um, festust í heilanum eins og grjót sem kemst ekki í gegn um möskva. Kannski eru slík andartök lík því að vera unglingur, þar sem breytingar gerast svo hratt að klukkutímar eða dagar geta skilgreint heilu tímabilin og alla hugsun manns. Innbyrðing á slíkum verkum getur breytt áhorfandanum örlítið, eða heilmikið. Oftast fer slíkt fram í kyrrþey, að listamanninum óafvitandi. Það að færa fólki verkfæri til þess að endurmeta heimssýn, upplifa og skilgreina í gegnum áhorf eða þátttöku í listaverki er starf sem byggir á því að senda skilaboð út í heiminn og vita, eða ekki, að það getur skilað sér strax, eða eftir áratugi í volki um beyglaðar og klístraðar víddir hugans. Þess vegna er dagur eða mánuður myndlistar eins konar þakkargjörð fyrir það sem manni hefur verið gefið, vettvangur til þess að berjast fyrir því að vegur myndlistar aukist í okkar samfélagi sem skilgreinir verðmæti frekar eftir því hvort hægt sé að bræða þau eða virkja, og mínúta til þess að rifja það upp að listaverk hafa raunveruleg áhrif á mann og eru leynt og ljóst hreyfiafl í samfélaginu. Góðan dag. [1] Allora and Calzadilla, Raptor's Rapture, 2012 [2] Rebecca Horn, Das gegenläufige Konzert [Concert in Reverse], 1987/97, Skulptur Projekte Münster 1987 [3] Korbinian Aigner, Apples, 1912-1960s Höfundur er myndlistarmaður, lektor og fagstjóri BA náms við Myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Menning Tengdar fréttir Spekúlantinn á Degi myndlistar Björn Th Björnsson taldi listina nákvæmustu loftvog þjóðfélagslegra hræringa, þannig að með því að banka í glerið mætti lesa af listinni loftþrýstinginn í samfélaginu; sjá ástandið eins og það er í dag og spá fyrir um hvernig það muni verða. 9. október 2017 11:15 Hugleiðingar á degi myndlistar Síðastliðið vor flutti ég erindi á ráðstefnu Sambands íslenskra myndlistamanna. Þar komst ég að þeirri lögfræðilegu niðurstöðu að mannréttindabrot fælist í því að myndlistamönnum væru ekki greidd laun fyrir sína vinnu. 14. október 2017 07:00 Mest lesið Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Victor Gudmundsson Skoðun Löggæsla er mikilvæg grunnþjónusta við fólkið í landinu Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Forseti Íslands, Baldur Þórhallsson Friðrik Erlingsson Skoðun „Brandarinn er búinn!“ María Heba Þorkelsdóttir Skoðun 30% kaupmáttaraukning með evru Guðmundur Ragnarsson Skoðun Menntamorð Ingólfur Gíslason Skoðun Almenn kvíðaröskun: léttvægt vandamál eða áhyggjuefni? Sævar Már Gústavsson Skoðun Algeng mistök við fasteignakaup og hvernig þú forðast þau Kristín Ósk Þórðardóttir Skoðun Katrín kann sig Aðalheiður Björk Olgudóttir Skoðun Forseti sem svarar á mannamáli Erna Ástþórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Katrínu á Bessastaði Brynja Þorbjörnsdóttir skrifar Skoðun Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar Skoðun Forseti Íslands, Baldur Þórhallsson Friðrik Erlingsson skrifar Skoðun Algeng mistök við fasteignakaup og hvernig þú forðast þau Kristín Ósk Þórðardóttir skrifar Skoðun Er ungum mönnum sama um sjófólk? Kjartan Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Þörfin fyrir heimilislækna Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Um lýðræði — Þrjár spurningar til forsetaframbjóðenda Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun 30% kaupmáttaraukning með evru Guðmundur Ragnarsson skrifar Skoðun Halla Tómasdóttir yrði góður forseti Rannveig Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn má ekki fara á taugum Gísli Jökull Gíslason skrifar Skoðun „Brandarinn er búinn!“ María Heba Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Katrín kann sig Aðalheiður Björk Olgudóttir skrifar Skoðun Löggæsla er mikilvæg grunnþjónusta við fólkið í landinu Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Menntamorð Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Náttúruminjasafn Íslands má sinna sýningahaldi! Hilmar J. Malmquist skrifar Skoðun Hvers vegna þurfti að farga bókinni? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hjarta umhverfismála Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir skrifar Skoðun Ísland hástökkvari í málefnum hinsegin fólks Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Banvænt aðgerðarleysi Tómas A. Tómasson skrifar Skoðun Viltu koma í ferðalag? Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun „Ég kýs homma“ Óli Gunnar Gunnarsson skrifar Skoðun Forseti sem svarar á mannamáli Erna Ástþórsdóttir skrifar Skoðun Hugrekki Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing SFS? Friðleifur Egill Guðmundsson skrifar Skoðun Jón Gnarr fyrir dýraverndina Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Mannréttindastofnun verður að veruleika Jódís Skúladóttir skrifar Skoðun Samstarf við landsbyggðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Lausnin út í mýri? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Sigþórsdóttir skrifar Skoðun Takk Ísland fyrir upplýsandi kosningabaráttu! Tómas Ellert Tómasson skrifar Sjá meira
Spekúlantinn á Degi myndlistar Björn Th Björnsson taldi listina nákvæmustu loftvog þjóðfélagslegra hræringa, þannig að með því að banka í glerið mætti lesa af listinni loftþrýstinginn í samfélaginu; sjá ástandið eins og það er í dag og spá fyrir um hvernig það muni verða. 9. október 2017 11:15
Hugleiðingar á degi myndlistar Síðastliðið vor flutti ég erindi á ráðstefnu Sambands íslenskra myndlistamanna. Þar komst ég að þeirri lögfræðilegu niðurstöðu að mannréttindabrot fælist í því að myndlistamönnum væru ekki greidd laun fyrir sína vinnu. 14. október 2017 07:00
Skoðun Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar
Skoðun Algeng mistök við fasteignakaup og hvernig þú forðast þau Kristín Ósk Þórðardóttir skrifar
Skoðun Löggæsla er mikilvæg grunnþjónusta við fólkið í landinu Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir skrifar