Viðskipti innlent

RIFF og TVG-Zimsen í samstarf

Samúel Karl Ólason skrifar
Björn Einarsson, framkvæmdastjóri TVG-Zimsen.
Björn Einarsson, framkvæmdastjóri TVG-Zimsen.
TVG-Zimsen mun sjá um alla flutninga fyrir Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar RIFF sem nú stendur yfir í Reykjavík. Þetta er í fjórtánda skipti sem RIFF er haldin hátíðleg.

„RIFF er einn stærsti og fjölbreyttasti menningarviðburður á Íslandi og ein af fáum, formlegum borgarhátíðum Reykjavíkur,“ segir Björn Einarsson, framkvæmdastjóri TVG-Zimsen í tilkynningu.

„Við erum stolt af því að styðja við bakið á hátíðinni með því að sjá um alla flutninga, tollamál og fleira sem fellur til fyrir hana. TVG-Zimsen hefur mikla reynslu af viðburðarflutningum um allan heim og hefur unnið mikið fyrir kvikmyndageirann. Þetta er nokkuð umfangsmikið verkefni enda er hátíðin um alla borg og það þarf að flytja ýmsan varning á milli fjölda staða, á sýningar, málþing og ýmsa sérviðburði og hóf sem tengjast hátíðinni. Það er skemmtilegt að taka þátt í þessum mikla menningarviðburði sem setur unga kvikmyndagerðarmenn og framsækna alþjóðlega kvikmyndagerð í forgang.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×