Viðskipti innlent

Kaupþing hætt við að selja eftirlýstum kaupsýslumanni tískukeðjurnar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hinn áhugasami bauð 60 milljónir punda fyrir verslanirnar.
Hinn áhugasami bauð 60 milljónir punda fyrir verslanirnar. VÍSIR/STEFÁN
Kaupþing hefur hætt við fyrirhugaða sölu á fataverslunarkeðjunum Coast, Warehouse og Oasis eftir að í ljós kom að sá eini tilboðsgjafinn er á hlaupum undan armi laganna.

Kaupþing setti verslanirnar á sölu í nóvember í fyrra en þær hafa verið í eigu félagsins frá árinu 2009 en það heldur utan um eignir gamla bankans. Rúmlega sex þúsund manns starfa í 750 útibúum verslannna en um er að ræða eina stærstu tískuvörukeðju Bretlands.

Fram kemur frétt í Sunday Times að nokkrir hafi sýnt keðjunum áhuga og að fyrir um mánuði síðan hafi Kaupþing verið í einkaviðræðum við fjárfestingasjóðinn Emerisque Brands. Sjóðurinn var stofnaður árið 2004 af Ajay Khaitan sem grunaður er um fjársvik í indversku borginni Calcutta árið 1988. Interpol hefur gefið út handtökuskipun á hendur Khaitan sem hefur ætíð neitað fyrir aðild sína að málinu.

Talsmaður Khaitan sagði í samtali við The Telegraph að deilan varði sjö þúsund punda kröfu, eða um 976 þúsund krónur, sem búið sé að endurgreiða.

Sjá einnig: Eftirlýstur kaupsýslumaður vill tískukeðjur frá Kaupþingi

Talsmaðurinn bætti við að Khaitan hefði flutt til Bretlands fyrir 20 árum og hefur ekki getað farið aftur til Indlands til að vera viðstaddur fjölda réttarhalda vegna þessa máls, sem hefur orðið til þess að handtökuskipunin var gefin út.

Talið er að Khaitan hafi boðið um 60 milljónir punda, um 8,3 milljarða íslenskra króna fyrir keðjurnar. Lengi hefur legið fyrir að Kaupþing gæti ekki gert sér vonir um að fá meira en 100 milljónir punda fyrir eignina.

Kaupþing vildi ekki greina frá ástæðum þess að hætti hafi verið við söluna til Emerisque Brands í samtali við Sunday Times. Framkvæmdastjóri félagsins, Paul Copley, sagði þó að það væri í engri tímaþröng við að selja keðjurnar. „Okkur finnst verðmætamat markaðarins ekki vera í takti við það sem okkur finnst um fyrirtækin,“ bætti hann við.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×