Viðskipti innlent

Rokkari og keppnismaður sem þolir ekki að sjá rauðar tölur

Ófeigur Friðriksson, sölu- og þjónustustjóri hjá Avis sem býður upp á deilibílaþjónustu Zipcar.
Ófeigur Friðriksson, sölu- og þjónustustjóri hjá Avis sem býður upp á deilibílaþjónustu Zipcar. Vísir/Anton
Ófeigur Friðriksson er sölu- og þjónustustjóri hjá bílaleigunni Avis en í síðasta mánuði hóf fyrirtækið að bjóða upp á deilibílaþjónustu innan höfuðborgarsvæðisins undir merkjum Zipcar á Íslandi. Er Reykjavík fyrsta borgin á Norðurlöndunum þar sem boðið er upp á deilibílaþjónustu Zipcar. Ófeigur, sem hlustar aðallega á rokk þegar hann er í ræktinni, situr hér fyrir svörum í Svipmynd Markaðarins.

Hvað hefur komið þér mest á óvart það sem af er ári?

Það er tvennt sem hefur komið mér skemmtilega á óvart. Annars vegar voru það alþjóðleg verðlaun sem við hjá AVIS á Íslandi fengum á ráðstefnu hjá AVIS Budget Group í síðustu viku í Aþenu. Þá vorum við valin Licensee of the year 2017 sem er auðvitað gríðarlegur heiður fyrir allt starfsfólk fyrirtækisins. Sérstaklega í ljósi þess að það er auðvitað búin að vera gífurleg aukning hjá okkur og höfum við þurft mikil klókindi til þess að halda utan um hana, það hefur tekist og því fengum við þessi verðlaun. Einnig hefur verið frábært að sjá viðbrögð fyrirtækja og almennings við Zipcar, sem er deilibílaþjónusta sem við opnuðum í síðasta mánuði. Það er gífurleg spenna fyrir þessu verkefni á markaðnum og við hlökkum mikið til að keyra þessa þjónustu áfram sem er auðvitað nýjung á Íslandi.

Hvaða app notarðu mest?

Ég nota Spotify mikið, sérstaklega þegar ég er að hreyfa mig. Stórkostlegt app sem hefur eiginlega gert það að verkum að ég er virkilega farinn að hlusta á tónlist aftur af einhverju viti. Mér finnst frábært að nota það til þess að svala forvitni um ýmsar tónlistarstefnur. Svo nota ég auðvitað fleiri öpp eins og Facebook, Zipcar appið, Workplace og Kelduna svo dæmi séu tekin. Mér finnst öpp svo frábær að stundum er hreinlega þægilegra að vinna á þau heldur en að vinna í tölvunni. Framtíðin er svolítið í appinu.

Hvað gerir þú í frístundum þínum?

Langbest finnst mér að vera í faðmi fjölskyldunnar. Það er gæðastund þegar öll fjölskyldan er saman, hvort sem er við matarborðið, á skíðum, að fylgjast með íþróttamótum hjá börnunum, ferðast eða fleira í þeim dúr. Það gefur mest. Þó ég sé ofboðslega ungur, að minnsta kosti í anda, þá held ég að því eldri sem maður er, því betur kunni maður að meta slíkar stundir þar sem öll fjölskyldan er saman komin. Svo eru gæðastundir með betri helmingnum auðvitað frábærar. Okkur finnst gaman að fara saman á tónleika, út að borða, saman á skíði eða jafnvel stelast til útlanda saman.

Hvernig heldur þú þér í formi?

Þetta er allt hætt að gerast að sjálfu sér, þannig að ég fer á hverjum degi eftir vinnu annaðhvort í Reebok Fitness eða að hjóla. Svo fer ég líka stundum um helgar. Í mínum huga er líkamsræktin ekki bara fyrir líkamann, þetta er líklega besti sálfræðingur sem til er.

Hvernig tónlist hlustar þú á?

Ég er voðalegur rokkari, því þyngra því betra. Sem mikill Mike Patton aðdáandi þá er ég að hlusta svolítið á Dead Cross þessa dagana, en það geri ég aðallega í ræktinni því ég er oftast úthrópaður sem smekkleysingi þegar ég botna mína tónlist heima! Annars á ég það líka til að hlusta á léttara rokk og jafnvel létta lounge tónlist og fönk.

Ertu í þínu draumastarfi?

Já, algjörlega. Er að vinna hjá frábæru fyrirtæki sem er gífurlega framsækið, með frábæru samstarfsfólki og í hröðu og lifandi starfsumhverfi. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sölu og þjónustu og ég þrífst á því að vinna í miklum hraða. Ég er með hrikalega mikinn metnað til þess að ná árangri, gera betur en áður. Það sem er svo skemmtilegt við sölu og þjónustu er að það er hægt að mæla árangurinn. Ég er mikill keppnismaður og þoli ekki að sjá rauðar tölur, ég vil hafa þær allar grænar. Það er að takast nokkuð vel þessi misserin, þökk sé frábærum og metnaðarfullum samstarfsfélögum. Er hægt að biðja um mikið meira en það?

Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×