Viðskipti innlent

TM Software kaupir hugbúnaðarlausn Dacoda fyrir bílaleigur

Samúel Karl Ólason skrifar
Lausn Dacoda heldur utan um flota, framboð, verð og bókanir á bílaleigubílum.
Lausn Dacoda heldur utan um flota, framboð, verð og bókanir á bílaleigubílum.
Fyrirtækið TM Sofware hefur keypt hugbúnaðarlausn Dacoda fyrir bílaleigur. Með því vilja forsvarsmenn TM Software efla framboð félagsins á eigin lausnum fyrir bílaleigur og aðila á sviði ferðaþjónustu. Samkvæmt tilkynningu heldur lausn Dacoda utan um flota, framboð, verð og bókanir á bílaleigubílum.

TM Software mun taka við þróun, viðhaldi og þjónustu við bílaleigukerfið en Dacoda mun draga sig út úr allri þróun bílaleigukerfa.

„TM Software hefur þróað eigin bílaleigulausn, Driver Guide, fyrir flota og leiðsögukerfi bílaleiga og viðskiptavini þess. Fyrirtækið sér mikil tækifæri og samleið með lausn Dacoda og Driver Guide og stefnir á að efla þróun bílaleigukerfisins enn frekar til að mæta sem best þörfum núverandi og framtíðarviðskiptavina,“ segir Soffía Þórðardóttir forstöðumaður ferðalausna TM Software í tilkynningunni.

„Á rúmlega 30 ára vegferð TM Software hefur félagið verið leiðandi í hugbúnaðarþróun og vinnur í dag fyrir mörg af öflugustu fyrirtækjum landsins. Hjá okkur er þjónusta við aðila á ferðasviði ört vaxandi. Kaupin á lausn Dacoda eru í takt við stefnu TM Software og munu efla lausnaframboð félagsins til framtíðar,“ segir Hákon Sigurhansson framkvæmdastjóri TM Software.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×