Viðskipti innlent

Halldóra, Katrín, Kristín og Vignir til Íslandssjóða

Atli Ísleifsson skrifar
Halldóra Skúladóttir, Katrín Huld Grétarsdóttir, Kristín Jóna Kristjánsdóttir og Vignir Þór Sverrisson.
Halldóra Skúladóttir, Katrín Huld Grétarsdóttir, Kristín Jóna Kristjánsdóttir og Vignir Þór Sverrisson. Íslandsbanki
Fjögur hafa verið ráðin í eignastýringarteymi Íslandssjóða en Íslandssjóðir hafa nú tekið að sér eignastýringu sérgreindra eignasafna fyrir Íslandsbanka.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.

„Halldóra Skúladóttir veitir forstöðu nýrri einingu innan Íslandssjóða, Eignastýringu, og með henni starfa þrír reyndir sérfræðingar í eignastýringu, Katrín Huld Grétarsdóttir, Kristín Jóna Kristjánsdóttir og Vignir Þór Sverrisson. Meðalstarfsaldur þeirra á fjármálamarkaði er 17 ár.

Eignastýring Íslandssjóða stýrir eignum á öllum helstu verðbréfamörkuðum fyrir hönd viðskiptavina sem gert hafa eignastýringarsamning við Íslandsbanka og VÍB, hvort sem um ræðir einstaklinga, lífeyrissjóði eða aðra fagfjárfesta.  

Íslandssjóðir hf. er elsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins, stofnað árið 1994 og er dótturfélag Íslandsbanka. Eignir í stýringu í sjóðum og sérgreindum eignasöfnum nema yfir 200 milljörðum króna og hjá félaginu starfa 19 sérfræðingar í eignastýringu,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×