Körfubolti

Martin: Skulda fjölskyldunni betri leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Martin Hermannsson.
Martin Hermannsson. Vísir/Ernir
Martin Hermannsson er í risastóru hlutverki hjá íslenska körfuboltalandsliðinu en hann er í miklu stærri rullu nú en á EM í Berlín fyrir tveimur árum.

Grikkir fóru ekki mjúkum höndum um strákinn í fyrsta leik og ætluðu greinilega að leggja ofurkapp á það að stöðva hann. Martin var með næstum því marga tapaða bolta (6) og stig (7) í leiknum og hann veit að hann getur gert miklu betur.

Íslenska liðið hitti aðeins úr 2 af 23 þriggja stiga skotum sínum í leiknum þar sem Martin, Jón Arnór Stefánsson og Logi Gunnarsson voru saman 0 af 8 í þriggja stiga skotum.

„Það er svekkjandi að vita til þess að við erum inn í leiknum fyrstu þrjá leikhlutana með þessa skotnýtingu. Hver veit hvað hefði gerst hefðum við bara hitt á venjulegan dag hjá flestum. Ef ég hefði sett tvo og Logi tvo og Jón Arnór tvo þá hefði eitthvað annað geta gerst. Það er alltaf hægt að segja ef og hefði. Þetta er rosalega dýrt þegar þú skýtur svona illa,“ segir Martin Hermannsson.

Íslenska liðið mætir Póllandi á eftir en margir sjá fyrir sér að þetta sé leikurinn þar sem íslenska liðið á mesta möguleika á sigri.

„Þetta er hörkulið og með leikmenn sem eru að spila í bestu liðum í Evrópu. Þeir eru með risa drumb inn í teig sem tekur mikið pláss. Á sama tíma getum við vonandi nýtt okkur að ráðast á hann sóknarlega því hann er hægur á löppunum. Þar liggur þeirra veikleiki og við ætlum að nýta okkur það,“ segir Martin.

Íslenska liðið byrjaði ekki nógu vel á móti Grikkjum í fyrsta leik sínum í keppninni og var komið 19 stigum undir, 10-29, í upphafi annars leikhluta. Það má ekki gerast í dag.

„Það skiptir rosalega miklu máli að við byrjum sterkt og fáum fólkið með okkur. Það er algjörlega ómetanlegt að hafa þetta fólk hérna í stúkunni. Gæsahúðin sem maður fékk þegar maður labbaði inn á völlinn var geggjuð,“ segir Martin en Ísland átti stúkuna algjörlega í leiknum við Grikki.

Fjöldskylda Martins hefur fjölmennt til Helsinki til að styðja við bakið á sínum manni og öll eru þau í treyju númer eitt eins og strákurinn.

„Það er nóg af ás treyjum upp í stúku og það er hrikalega gaman að hafa alla hérna. Ég skulda þeim þokkalega betri leik og ég ætlað að sleppa því að vera í villuvandræðum,“ segir Martin staðráðinn í að eiga betri leik í dag.


Tengdar fréttir

Þarf að vera klókari

Grikkir smjöttuðu á mistökum körfuboltastrákanna okkar í 29 stiga sigri í Helsinki í gær. Frábær annar leikhluti kveikti vel í fjölda Íslendinga sem voru mættir í höllina en hinir þrír leikhlutarnir töpuðust samtals 38-79. Einn af þeim sem geta gert miklu betur er Martin Hermannsson sem dró ekki dul á eigin ábyrgð eftir leik.

Martin: Ég hef aldrei séð það áður hjá íslensku landsliði

Martin Hermannsson er ekkert hrifnari af keppnisboltanum eftir nóttina. Forráðamenn evrópska körfuboltasambandsins voru nefnilega ekki að gera íslensla körfuboltalandsliðinu neinn greiða þegar þeir völdu keppnisboltann fyrir Eurobasket 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×